Eins og að hitta sjálfan sig fyrir 30 árum
-„Röddin er í toppformi, eins og eðalvín sem verður betra með árunum,“ segir Sigurður Eyberg, söngvari Pandóru
Hjómsveitin Pandóra kemur fram á tónleikunum „Heima í gamla bænum“ á Ljósanótt. Tónleikar Pandóru fara fram í Rokksafni Rúnars Júlíussonar. Pandóra var stofnuð árið 1988 og voru allir meðlimir í Fjölbrautaskóla Suðurnesja á þeim tíma. í upprunalegu hljómsveitinni voru þeir Björn Árnason, bassa- og hljómborðsleikari, söngvarinn Sigurður Eyberg Jóhannesson, gítarleikarinn Þór Sigurðsson og Júlíus Guðmundsson, trommuleikari. Hljómsveitin var áberandi í tónlistarlífi Suðurnesja um 1990 og ól af sér hljómsveitina Deep Jimi and the Zep Creams, sem reyndi fyrir sér á erlendum markaði.
„Björn Árnason kemur ekki fram með okkur á þessum tónleikum en Magnús Þór Einarsson spilar með okkur. Hann kom síðar inn í hljómsveitina í staðinn fyrir Björn á bassann,“ segir Sigurður Eyberg, söngvari Pandóru. „Við höfum hist af og til. Magga hef ég ekki hitt í um 25 ár. Hann býr í Bandaríkjunum og kemur einnig fram með Ofris svo það verður nóg að gera hjá honum. „Þetta eru svolítið fyndnar og blendnar tilfinningar. Þetta er eins og að hitta sjálfan sig fyrir 30 árum. Það er búið að vera mjög gaman hjá okkur að hittast og fara yfir þetta.“
Er ekkert mál að taka þessi lög aftur?
„Nei það eiginlega bara svolítið fyndið. Maður fer að skilja þegar gamla fólkið er búið að gleyma öllu sem gerist í dag en man það sem gerðist þegar það var 15 ára. Þetta virðist vera svipað, sumt virðist vera límt þarna en þetta rifjast mjög auðveldlega upp.“
Eru einhver áform að koma eittvað meira fram eða verður þetta bara einstakur viðburður?
„Ég held að þetta verði bara einstakur viðburður. Magnús er í Bandaríkjunum og því ekki oft á landinu. Þetta á að vera eins konar „walk down memory lane“. Við komum svo einu sinni fram í Rokksafni Rúnars Júlíussonar, þannig þetta verður lítið og skemmtilegt. Þór sagði að þetta verði eins eins konar Cavern stemming eins og Bítlarnir voru í gamla daga. Það er ekki komin hugmynd um að koma fram aftur.“
Sigurður er aðal söngvarinn en hinir ætla að vera duglegir að syngja líka. „Röddin er alveg í toppformi. Hún er bara eins og eðalvín, verður bara betri með árunum,“ segir Sigurður.