Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Eins manns rusl er annars gull
Laugardagur 9. september 2023 kl. 06:00

Eins manns rusl er annars gull

Hvað eiga pennar, plastpokar, bíóprógrömm, servíettur og eldfæri sameiginlegt?

Þetta eru allt smáhlutir sem hafa verið framleiddir með ákveðið notagildi í huga. Þegar þeir hafa lokið hlutverki sínu enda þeir oftar en ekki í ruslinu. Til eru þeir sem hafa þó einsett sér að safna slíkum hlutum með það markmið að eignast sem flesta og af mismunandi gerðum. Á sýningunni Eins manns rusl er annars gull má sjá smáhluti sem hafa borist Byggðasafni Reykjanesbæjar sem heildstæð einkasöfn eða hluti af öðrum gjöfum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Annað atriði sem þessir smáhlutir eiga sameiginlegt er að þeir voru fjöldaframleiddir á árum áður en eru margir fágætari í dag. Stór hluti er merktur fyrirtækjum eða vörumerkjum, enda voru þeir ýmist gefnir, látnir fylgja með öðrum vörum eða seldir vægu verði. Hér gefst því tækifæri til að rifja upp liðna tíð og virða fyrir sér hvernig myndskreytingar og vörumerki hafa breyst. Elstu munirnir eru frá þriðja áratug tuttugustu aldar en þeir yngstu aðeins nokkurra ára eða áratuga gamlir.

Þessir munir eru til sýningar í Bryggjuhúsi Duus safnahúsa en sýningin var opnuð á Ljósanótt.