Bygg
Bygg

Mannlíf

Einn af hápunktum matargerðar á Suðurnesjum
Það er skemmtilegt stemmning og upplifun á villibráðarkvöldi í Lava í Bláa lóninu. VF-myndir/pket.
Sunnudagur 3. nóvember 2013 kl. 16:35

Einn af hápunktum matargerðar á Suðurnesjum

-villibráðarupplifun í Bláa lóninu

Villibráðarupplifun í Bláa lóninu

Villibráðarhlaðborð Bláa lónsins er einn af hápunktum matargerðar á Suðurnesjum á hverju hausti. Margverðlaunaðir matreiðslumeistarar Lava veitingastaðarins fara á kostum með Viktor Örn Andrésson matreiðslumeistara ársins 2013 í fararbroddi.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Auk þessa eftirsótta titils Viktors sigraði Rúnar Pierra Heriveanx, matreiðslunemi hjá Bláa lóninu í nemakeppninni. Þá eru fleiri landsliðskappar í eldhúsinu hjá Lava.

Þegar svona flottur hópur matreiðslumanna tekur sig til og fær að spreyta sig á hráefni sem er alla jafna ekki í boði nema á haustin, þá er von á góðu. Það er ekki mikið framboð af villibráðarkvöldum á Suðurnesjum og því ber að fagna því þegar besti veitingastaðurinn á svæðinu býður í slíka veislu. Í ár voru tvö kvöld í boði, 25. og 26. okt. sl. og voru mjög vel sótt.

Svo tekin séu nokkur dæmi af villibráðarmatseðlinum þá byrjaði veislan í forréttunum þegar villibráðarsúpa var borin fram, hrein snilld. Meðal annarra forrétta voru ýmsar útgáfur af laxi, grafin gæs og reykt andabringa. Hljómar ekki illa eða hvað! Hreindýracarpaccio fer með bragðlaukana á æðra svið og mini hreindýrahamborgarar með gráðosti eru geggjaðir. Þegar hér er komið sögu er vissara að taka smá pásu því það er auðvelt að gleyma sér í þessum góðu forréttum. Ekki svo vitlaus hugmynd að taka smá göngutúr um glæsilegan salinn og velta aðeins fyrir sér þessum magnaða stað í hrauninu í Grindavík. Hvernig varð þessi staður eiginlega til? En áfram skal borðað. Aðalréttir á villibráðarborðinu bíða. Nú virðist vera komið meira pláss í magann.

Í aðalréttum fara bragðlaukarnir á fleygiferð þegar smakkað er á hægeldaðri gæsabringu með bláberja- og vodkasósu og eins í hreindýrasteik með frábærri skógarsveppasósu. (Sósa sem mann dreymir um að geta gert sjálfur heima!) Þeir sem vilja ekki fylla diskinn af villibráð geta farið í íslenska fjallalambið með villtum kryddjurtum. En hvað er lamb annað en ákveðin tegund af villibráð þó svo það sé ekki „veitt“ á sama máta en sennilega lífrænasta kjöt í heimi.

Í eftirrétt má ekki sleppa rabarbaraköku með þeyttum rjóma eða Crème brûlée að hætti LAVA. Þjónar staðarins hjálpar svo til að að gera svona kvöld óviðjafnanlegt. Umhverfið og salarkynni eru líka einstök. Sannarlega staður til að heimsækja og þetta eru skilaboð til Suðurnesjamanna sem geta verið stoltir af því að eiga svona frábæran veitingastað á svæðinu. Ekki bara til að sækja í eðalkvöld eins og villibráð heldur og bara til að fara í léttan hádegis- eða kvöldverð hvenær sem er.

Bestu kveðjur til allra á Lava og þakkir fyrir magnað kvöld,
Páll Ketilsson.

Meistari

Viktor Örn segir það vera afar hvetjandi að hafa unnið keppnina um matreiðslumann ársins. „Keppnin er mikilvægur þáttur í að byggja upp fagið  þar sem áhersla er á fagmennsku. Íslensk matargerð gegnir einnig lykilhlutverki í íslenskri ferðaþjónustu og áhersla Bláa lónsins á matargerð er táknræn fyrir þennan þátt ferðaþjónustunnar. Rúnar Pierre Heriveanx, matreiðslunemi hjá Bláa lóninu sigraði nemakeppnina sem var einnig haldin um helgina. Við hjá Bláa lóninu höfum lagt áherslu á að auka áhuga ungs fólks á að læra fagið og árangur Rúnars er okkur mikil hvatning til að halda áfram á sömu braut,“ segir Viktor.

Villibráðarsúpan er einstök.

Salarkynni Lava veitingastaðarins eru skemmtileg þar sem umhverfi Bláa lónsins kemur skemmtilega inn í.

Hreindýrahamborgararnir eru vinsælir enda mjög góðir.

Villibráðarkvöldin voru vel sótt.