HSS
HSS

Mannlíf

Föstudagur 28. júní 2002 kl. 11:37

Einkennileg söfnunarárátta í Garði

Íbúarnir við Kríuland í Garði hafa einkennilega söfnunaráráttu en þeir safna gömlum traktorum í garðinn hjá sér. Tveir íbúar, þeir Knútur Guðmundsson frá Garðhúsum og Ásgeir Hjálmarsson frá Presthúsum hafa nú þegar komið fyrir traktor á lóðinni hjá sér og hver veit nema fleiri fylgi í kjölfarið.Ásgeir, sem á betur útlítandi traktorinn, var fyrri til að setja „skrautið“ í sinn garð og er það mál manna að Knútur hafi ekki viljað vera eftirbátur Ásgeirs og því hafi hann komið fyrir einum „flottum“ á blettinn hjá sér.
Bílakjarninn
Bílakjarninn