Einhverfa og skipulögð kennsla - fyrirlestur hjá MSS
Þriðjudaginn 27. október kl. 13:00-14:00 verður Svanhildur Svavarsdóttir með fyrirlestur í Miðstöð Símenntunar á Suðurnesjum (MSS). Yfirskrift fyrirlestursins er „Einhverfa og skipulögð kennsla“ þar sem fjallað verður meðal annars um Skipulagða kennslu sem aðferð sem byggir á hugmyndafræði TEACHH.
Svanhildur er talmeinafræðingur, sérkennari og sérfræðingur í boðskiptafræðum barna með einhverfu. Hún starfar nú í Arizona í Bandaríkjunum þar sem hún sinnir kennslu, ráðgjöf og uppbyggingu sérdeildar fyrir einhverfa. Svanhildur hefur áratuga reynslu af þessum málaflokki og er hafsjór af fróðleik um einhverfu. Fyrirlesturinn er opin öllum þeim sem hafa áhuga.