Eiður Smári með styrktarhátíð fyrir leik Grindavíkur og Keflavíkur í dag
Í dag mætast erkifjendurnir Grindavík og Keflavík á heimavelli þeirra fyrrnefndu og takast á í Pepsideildinni. Umgjörð þessa leiks er nokkuð frábrugðin því sem við erum vön því Eiður Smári Guðjohnsen hefur sett saman styrktarhátíð á undan leiknum. Hátíðin er til styrktar Frank Bergmanni, ungs drengs frá Grindavík sem barist hefur við krabbamein um langt skeið.
Eiður hefur kallað saman nokkra góðvini sína úr íþróttunum og skemmtibransanum og ætlar hópurinn að bregða á leik á undan leiknum á dag.
Hátíðin hefst klukkan 18:00 en fram koma Lísa Einarsdóttir úr Idol Stjörnuleit, Ingo Veðurguð, Auddi og Sveppi að ógleymdum Eiði Smára, Evrópumeistaranum sjálfum. 200 krónur af öllum seldum aðgöngumiðum mun renna beint til Franks og fjölskyldu hans en síðan verður hægt að leggja fram frjáls framlög og efnt verður til uppboðs á nokkrum ómetanlegum gripum sem áritaðir verða af Eiði og hugsanlega Sveppa. Kynnir verður Einar Bárðarson.