Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

„Ég veit hvað ég vil“
Anna Ósk Erlingsdóttir ljósmyndari.
Fimmtudagur 26. desember 2013 kl. 10:15

„Ég veit hvað ég vil“

Tískuljósmyndun er skemmtilegur en harður bransi. Víkurfréttir tóku viðtal við Önnu Ósk Erlingsdóttur.

Ljósmyndarinn og Sandgerðismærin Anna Ósk Erlingsdóttir hefur búið í Gautaborg í rúm þrjú ár. Einnig bjó hún þar á árunum 2002 til 2006 en flutti til Queensland í Ástralíu og lærði ljósmyndun í rúm 2 ár. Hún segir ævintýraþrána hafa lokkað sig til útlanda og hún hafi búið í útlöndum af og til frá því hún var 16 ára, þegar hún fór til Bandaríkjanna sem skiptinemi. Starf tískuljósmyndara gangi mikið út á það að þekkja rétta fólkið en hún blæs á það og fer sínar eigin leiðir.


Er mikil flökkukind

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Ýmislegt hefur á daga Önnu Óskar drifið á erlendri grundu. Hún segist vera mikil flökkukind sem hafi búið í Noregi, Bandaríkjunum, Ástralíu og svo núna í Svíþjóð. „Þrátt fyrir heimþrá af og til þá held ég að ég hafi tekið góða ákvörðun með að flytja erlendis. Ég hefði sjálfsagt annars ekki byrjað í ljósmyndun. Í Gautaborg kynntist ég mjög listrænu fólki og það leiddi mig á þá braut sem ég er á núna og til mannsins í lífi mínu, þannig að ég kvarta ekki,“ segir Anna Ósk ánægð.


Fólkið er skemmtilegast

Önnu Ósk finnst fólkið án efa skemmtilegasti hlutinn af starfi sínu sem ljósmyndari. Það sé alltaf gaman að hitta nýtt fólk og skapa eitthvað fallegt með því. Einnig sé alltaf gaman að sjá afrakstur hugmyndavinnunnar. Hún telur erfiðast við starfið að sitja tímunum saman í eftirvinnu fyrir framan tölvuna. Það sé oft erfitt, fyrir bæði bak og aðra líkamshluta.


Sandstormur og mikill kuldi

Spurð um eftirminnileg atvik segir Anna Ósk að slík atvik komi alltaf upp í myndatökum og í raun sé erfitt að velja á milli þeirra. Að vinna með skapandi fólki sé alltaf mjög gefandi og það sé alltaf gaman í tökum hjá sér. „Ég er heppin að því leytinu til að ég fæ að velja opið og skemmtilegt fólk að vinna með og það gefur mér mikið. Það er enginn dans á rósum að vera ljósmyndari eins og margir virðast oft halda. Ég hef þurft að vaða í vatni upp að mitti til að fá þá mynd sem ég vildi fá. Einnig hef ég lent í svakalegum sandstormi og varla getað staðið í lappirnar. Svo hef ég verið í svo miklum kulda að hendurnar á mér voru orðnar bláar í lok dagsins. En þetta er allt þess virði ef maður fær þær myndir sem maður vill fá í lokin,“ segir Anna Ósk með áherslu.


Íslensk náttúra besti bakgrunnurinn

Hún segist alltaf koma reglulega heim til Íslands og það sé alveg nauðsynlegt. Þá verji hún oftast góðum tíma með fjölskyldu og vinum. Fjölskyldan sé alltaf númer eitt á listanum hjá henni. Þá elskar hún einnig að ferðast um landið og fá innblástur frá náttúrunni. Hún segir enga spurningu um það að hafa lært að meta betur heimalandið úr fjarlægð. „Ég er mjög stoltur Íslendingur og tala oft um Ísland og mæli með að fólk ferðist þangað. Sem ljósmyndari sakna ég oft íslensku náttúrunnar sem bakgrunns í myndatökum. Það er ekki hægt að líkja Íslandi við neitt annað,“ segir Anna Ósk.  


Saknar íslensks matar og sælgætis

Anna Ósk viðurkennir einnig að hún sakni sárlega íslensks matar og sælgætis. Henni líki líka vel við Íslendinga og einkenni þeirra. „Þeir eru svo hreinir og beinir, segja það sem þeir hugsa og eru ekki með eilífar krúsídúllur. Þeir eru óhræddir við að segja sínar skoðanir og ég kann vel að meta það.“ Þegar hún bjó sjálf á Íslandi stundaði Anna Ósk, eins og margir Suðurnesjabúar, nám í Fjölbrautaskóla Suðurnesja og seinna í Viðskipta- og tölvuskólanum, sem var og hét, og nældi sér þar í markaðs- og sölugráðu. Eftir það tók við ljósmyndunarnámið í Ástralíu.


Veit hvað hún vill

Við báðum hana um að lýsa því hvernig venjulegur dagur hjá henni gengi fyrir sig. Hún segir það alveg fara eftir því hvað standi til. „Ef ég er að ljósmynda þá byrjar dagurinn með hárgreiðslu og förðun og það tekur oftast sinn tíma. Oft tekur það lengri tíma en sjálf myndatakan.“ Hún segist vera nokkuð þekkt fyrir að vita hvað hún vill og tökurnar hennar séu oft ekki langar. „Það er mjög mikilvægt að vita hvað maður vill í þessum bransa því þá er auðveldara fyrir fyrirsæturnar að gefa manni í raun það sem maður vill. Þegar tökum er lokið vil ég oftast byrja að vinna myndir sem fyrst svo að tilfinningin og stemmningin úr tökunni sé ennþá lifandi,“ segir Anna Ósk.


Forsíðubirting algjör draumur

Varðandi birtingu í tímarit og víðar segir Anna Ósk að slíkt sé alltaf mjög mikilvægt fyrir ljósmyndara. Það sé auglýsing sem erfitt sé að toppa. „Að fá forsíðu er algjör draumur. Því miður þá er birting í veftímariti og mörgum öðrum tímaritum oft ekki borguð og er því einungis auglýsing fyrir ljósmyndarann og „teymið“ hans. Því miður þá er tískubransinn mjög illa borgaður á meðan að þú ert að klífa upp metorðastigann en síðan ef þú ert heppin að fá greitt fyrir vinnu þá er verið að tala um fjárhæðir sem flestir láta sig bara dreyma um.“ Þá segir hún bæði klíkuskap og baktal vera í þessum bransa eins og mörgum öðrum. „Að þekkja rétta fólkið er oftast metið meira en hæfileikar og það er því miður sannleikurinn en ég læt það ekkert á mig fá. Ég tel mig vera með ansi harða skel og hætti ekkert fyrr en ég er komin á toppinn,“ segir Anna Ósk ákveðin að lokum.

 

Þessi mynd var tekin í Sandvík á árinu og hefur verið birt á heimasíðu Vogue Italia.

 

Þessi mynd var birt á heimasíðu Vogue Italia.

 

Mynd fyrir Ida Wadenrud design, tekin í vetur í Gautaborg og er á heimasíðu Vouge Italia.

 

Mynd fyrir Linn Becker design, tekin í Gautaborg 2013.

 

Mynd tekin á Íslandi árið 2010.

 

Þessi mynd er tekin í Ástralíu 2012 og verður notuð í Canon auglýsingu fljótlega.

 

Tekin fyrir Mýr design. Hönnuður og módel frá Suðurnesjum.

 

VF/Viðtal - Olga Björt.