Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Ég sé þig -sjónvarpsþáttur um skapandi tónlistarmiðlun
Fimmtudagur 26. maí 2022 kl. 16:12

Ég sé þig -sjónvarpsþáttur um skapandi tónlistarmiðlun

Ég sé þig, sjónvarpsþáttur um skapandi tónlistarmiðlun verður frumsýndur á RÚV sunnudaginn 29. maí kl 20:05. Í þættinum sjáum við hvernig Keflvíkingurinn Sigrún Sævarsdóttir-Griffiths nýtir tónlist til að hjálpa fólki til virkni í samfélaginu en hún hefur stofnað fjölda hljómsveita víða um heim með jaðarsettum einstaklingum.

Markmiðið er að fólk tilheyri hljómsveit og taki þátt í að búa til frumsamda tónlist. Í þessum sjónvarpsþætti fylgjumst við með stofnun Kordu Samfóníu sem er 35 manna hljómsveit á Íslandi og samanstendur af fólki sem hefur leitað sér hjálpar hjá starfsendurhæfingar-stöðvum, spilurum úr Sinfóníuhljómsveit Íslands og nemendum og starfsfólki við skapandi tónlistarmiðlun í Listaháskóla Íslands. Einnig er rætt við þrjá meðlimi Kordu Samfóníu um þýðingu verkefnisins fyrir þau og hvernig það hjálpaði þeim að vinna sig í gegnum sín áföll.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

„Ég kynntist Sigrúnu í London árið 2017 og heillaðist algjörlega af því hvernig hún nýtti skapandi tónlistarmiðlun í vinnu sinni með heimilislausum. Ég var því ekki í neinum vafa um að mig langaði að finna flöt á að segja frá söguna um stofnun Korda Samfóníu á Íslandi og varpa ljósi á mikilvægi þess starfs sem Sigrún leiðir, Anna Hildur Hildibrandsdóttir leikstjóri.

„Tónlist er svo miklu meira en eitthvað til þess að hafa gaman af. Tónlistarkiðkun breytir lífi fólks og allir ættu að fá tækifæri til þess að tengjast og eflast með þessum hætti,” segir  Sigrún Sævarsdóttir - Griffiths hljómsveitarstjóri

Þátturinn er framleiddur fyrir RÚV og styrktur af Endurgreiðslusjóði fyrir kvikmyndir, Miðstöð símenntunnar á Suðurnesjum/Samvinnu, Lýðheilsusjóði, Starfsendurhæfing Hafnarfjarðar, Starfsendurhæfingu Vesturlands, Tónlistarborginni Reykjavík og VIRK.