Ég nota kannski Iphone-inn í útskriftargjöf fyrir drengina
- heppnir Suðurnesjamenn í Jólalukku VF
„Þetta er æði. Ég var nýbúinn að skafa eina tveggja lítra Appelsín og tuðaði við sjálfa mig af hverju ég fengi ekki stærri vinning. Svo kom þessi glæsilegi vinningur sem kemur sér vel því dóttir mín býr í Bandaríkjunum,“ segir Sigrún Ingólfsdóttir en hún er nýbúi á Ásbrú og vann ferðavinning með Icelandair í Jólalukku VF og verslana á Suðurnesjum.
Sigrún flutti á Ásbrú í fyrra og er búin að búa í Reykjanesbæ í um ár eftir að hafa búið á Siglufirði í nærri fjörutíu ár. Fór ung stúlka á vertíð og festist á staðnum, átti börn og góða ævi í firðinum norður í landi. „Mér finnst mjög fínt hér suður með sjó, er þó að venjast vindinum sem er ekki svona fyrirferðamikill á Sigló,“ segir hún. Sigrún ákvað að elta börnin sín og barnabörnin sem búa á Suðurnesjum og í Hafnarfirði. „Ég var að missa af þeim hreinlega og ákvað að flytja mig nær þeim. Mér finnst ég öll hafa lifnað við að hitta börnin og barnabörnin miklu oftar svo þetta er bara æðislegt hérna,“ sagði hin glaði vinningshafi Sigrún Ingólfsdóttir.
Helga M. Pálsdóttir, íbúi við Suðurgötu í Keflavík var nýbúinn að fá nýjan síma þegar hún var dreginn út í fyrsta útdrætti Jólalukkunnar en hún skilaði miðum í kassa í Nettó í Njarðvík. „Ég er með tvo unga menn í fjölskyldunni sem eru að útskrifast úr námi næsta vor. Ég gæti kannski notað þennan flotta Iphone í það, er það ekki?“ sagði Helga þegar blaðamaður VF sveif á hana þar sem hún var að taka við símanum á skrifstofu Samkaupa í Krossmóa.
Sæmundur Pétursson, íbúi við Kirkjuveg 1 í Keflavík var einnig með heppnina með sér í fyrsta útdrætti. Hann er núna splunkunýjum Iphone 7 ríkari. Sæmundur veifaði gamla Nokia símanum og sagði að nú væru tímamót hjá honum. Ný símaöld að taka við.
Sigrún var alsæl með ferðavinninginn sinn.
Sæmundur með gamla Nokia símann og nýja Iphone 7 símann.