„Ég hef tækifæri til að gera það sem ég elska“
-Valur Orri spilar körfubolta í Bandaríkjunum
Körfuboltinn gengur vel hjá Vali Orra Valssyni, en hann er búsettur í Bandaríkjunum þar sem hann stundar nám í viðskiptum hjá Florida Institude of Technoligy og spilar körfubolta samhliða.
„Ég er búinn að kynnast mörgum hérna úti, enda eru Kanarnir ekki hræddir við að vaða í mann og byrja að spjalla eins og maður hafi þekkt þá í þrjátíu ár. Mér finnst það bara skemmtilegt, þá líður manni eins og maður sé velkominn hér,“ segir Valur en Bandaríkin eru að hans sögn mjög ólík Íslandi. „Kanar elska Ameríku og sjá ekkert annað. Við Íslendingar elskum landið okkar en viljum alltaf vera annars staðar. Það er svo margt ólíkt með þessum stöðum. Hérna eru mjög margir útlendingar og maður eignast vini frá ýmsum stöðum í heiminum.“
Það besta við að búa í Bandaríkjunum segir Valur vera veðrið. „En fyrir utan það þá er það sennilega rútínan sem maður er í. Ég hef tækifæri til að gera það sem ég elska allan daginn. Svo er það auðvitað gráðan sem maður horfir til.“
Strákarnir í liðinu eru góðir saman og verja þar af leiðandi miklum tíma saman. „Á meðan maður er í körfunni og skólanum er rosalega takmarkaður tími til að gera eitthvað annað, en við reynum að kíkja út annað slagið, annars erum við bara slakir. Svo er alltaf hægt að kíkja til Orlando í verslunarmiðstöðvarnar og einhverjar afþreyingar.“
Hefðbundinn dagur hjá Vali hefst um átta leytið á morgnana, en hann kemur sér í skólann og borðar almennilegan morgunmat. Hann mætir í alla tímana sína og æfir körfubolta oftast á milli klukkan þrjú og sex. Eftir æfingarnar tekur lærdómurinn við.
„Ég reyni að hugsa lítið um það hvað hvað ég ætla að gera eftir skólann og leyfi því frekar að koma bara til mín. Ég ætla að klára þetta fyrst og svo set ég mér ný markmið og nýja stefnu.“