„Ég er svolítil Vigdís í mér“
- Vill blása þjóðinni von í brjóst
„Mér hefur gengið alveg rosalega vel að safna undirskriftum,“ segir forsetaframbjóðandinn og Sandgerðingurinn Araliuz Gestur Jósefsson, betur þekktur sem Ari Jósefs. „Fólk hefur jafnvel haft samband við mig af fyrra bragði og boðið mér í afmælisveislur. Þá hef ég haldið ræður um mín mál og safnað undirskriftum.“ Á næstu dögum ætlar Ari í ferð um landið og safna fleiri undirskriftum. Hann segir ekkert annað koma til greina en að berjast áfram enda sé hann ekki þekktur fyrir að gefast upp. „Ég er þrjóskur eins og Ólafur Ragnar Grímsson og jákvæður gagnvart kosningabaráttunni,“ segir hann.
Samkvæmt lögum skal forseti Íslands vera eldri en 35 ára en Ari nær þeim aldri einmitt 5. júní næstkomandi. Hann tók þá ákvörðun síðasta sumar að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands. Hann kveðst hafa lært heilmikið á þeim tíma sem liðinn er af kosningabaráttunni. „Maður er alltaf að læra. Ég er eiginlega orðinn forseti í huganum. Ég er alveg búinn að kafa ofan í þetta og er mjög stoltur af sjálfum mér hvað ég er kominn langt.“
Vill að unga fólkið kjósi
Ari segir þá ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar að bjóða sig aftur fram til embættis forseta Íslands ekki hafa haft nein áhrif á sínar fyrirætlanir. Ari vill hafa áhrif á unga fólkið og hvetur það til að mæta á kjörstað, ekkert endilega til að kjósa sig heldur til að fylgjast með þjóðmálunum. „Ég var alveg viss um að Ólafur myndi bjóða sig aftur fram. Svo boðaði hann fund og tilkynnti það því að hann þarf að bjarga Íslandi. En það er ekki hann sem getur bjargað Íslandi. Það er þjóðin og lýðræðið sem gera það. Við þurfum að kjósa rétt til Alþingis því að þar þarf breytingar. Ef ég hefði verið forseti núna á dögunum þegar upplausnin varð hefði ég gert þingrof strax og látið Sigmund fjúka, og Bjarna Ben og Ólöfu Nordal með.“
Önnur áherslumál Ara í kosningabaráttunni eru málefni eldri borgara sem hann segir ekki í lagi. Þá er landgræðsla honum hugleikin. „Ég er svolítil Vigdís í mér,“ segir hann og brosir. „Ég vil vera maður fólksins og tala við það á mannlegum nótum, gróðursetja tré og reyna að lyfta þjóðinni upp og draga úr þessari neikvæðu orku sem er hér akkúrat núna.“ Ari kveðst finna fyrir uppsveiflu og segir fólk geta andað léttar og slakað á, þetta sé allt á réttri leið.
Ari ásamt hundunum sínum þeim Kanínku og Spottie. Myndin er tekin í Sandgerði en þar hefur Ari búið undanfarin tvö ár.
Sáttur í Sandgerði
Ari ólst upp í Reykjavík en flutti til Sandgerðis fyrir tveimur árum. Hann vildi komast í rólegheitin utan höfuðborgarsvæðisins og kann vel við sig í Sandgerði en þar býr hann með hundunum sínum tveimur, þeim Kanínku og Spottie. „Það er yndislegt að vera hérna innan um fuglalífið. Vinkona mín og systir fluttu hingað aðeins á undan mér. Svo fann ég krúttlegt hús hérna í Sandgerði og keypti það og er alsæll.“ Ari er sá eini á Íslandi sem ber nafnið Araliuz. Afi hans hét Ariliuz en vegna stafaruglings í kerfinu fékk hann nafnið Araliuz. Hann er sáttur með niðurstöðuna og að heita svo sérstöku nafni. Ef hann verður kosinn forseti myndi hann þó vilja að fjölmiðlar notuðu fullt nafn.
Í gegnum tíðina hefur Ari ferðast mikið og deilt myndböndum af ferðalögum sínum á YouTube. Nýlega kom hann til baka frá Indónesíu og Kuala Lumpur. Ferðalögin eru eitt helsta áhugamál Ara og hann kveðst vera hálfgerður landkönnuður og heppinn að hafa getað ferðast svo víða. Ástralía er í miklu uppáhaldi hjá Ara og svo heldur hann mikið upp á Bandaríkin en þangað fer hann oft. Ari hefur lagt stund á leiklist og lokið ýmsum námskeiðum í faginu. Núna sækir hann tíma hjá Garúnu, Guðrúnu Daníelsdóttur, í Höfnum. „Leikari útskrifast aldrei, það er alltaf hægt að læra meira. Þetta er svipað með forsetaembættið, þar er ég búinn að læra alveg rosalega mikið og spjalla við margt fólk á meðan ég hef safnað undirskriftum. Þetta er búið að vera mjög gaman.“
Ari ásamt nokkrum kengúrum í Ástralíu. Hann hefur ferðast mikið og heldur sérstaklega upp á Ástralíu.