Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

  • Efnilegir leikarar í Grindavík
    Leikritið Partýland.
  • Efnilegir leikarar í Grindavík
    Hluti leikhópsins í leikritinu Vinsæld.
Fimmtudagur 6. apríl 2017 kl. 12:00

Efnilegir leikarar í Grindavík

Nemendur í Grunnskóla Grindavíkur frumsýndu tvö leikrit

Leikritin Partýland og Vinsæld voru frumsýnd á árshátíð elsta stigs Grunnskóla Grindavíkur síðastliðinn þriðjudag. Nemendur í 7.- 8. bekkjum sýndu leikritið Partýland í leikstjórn Aldísar Davíðsdóttur og nemendur í 9.-10. bekk sýndu leikritið Vinsæld eftir Pálmar Guðmundsson í leikstjórn höfundar. Víkurfréttir fengu að fylgjast með generalprufum leikritanna.

„Þetta hefur gengið mjög vel. Það hefur alltaf verið draumur hjá mér að taka svona verkefni að mér. Rauði þráðurinn í leikritinu er vinátta og það að vera vinsæll og hvort það sé eitthvað sem skipti máli. Krökkunum finnst þetta fyndið og hafa verið mjög áhugasöm og dugleg,“ segir Pálmar, leikstjóri og höfundur Vinsældar.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Aldís, leikstjóri og höfundur Partýlands, segir boðskap verksins vera þann að sama hvaða höft séu sett á mann, þá vilji maður samt hafa frelsi til þess að velja sjálfur. „Þetta er búið að vera merkilega stutt æfingaferli. Einhverjar þrjár vikur og örfáir tímar fyrir það. Þau eru búin að vera alveg á haus. En krakkarnir eru svo skapandi og gefandi. Þetta er búið að vera mjög góð samvinna.“

Sýning fyrir almenning var í gær, miðvikudag og í dag fimmtudaginn klukkan 20:00, þar sem bæjarbúum gefst tækifæri á að sjá sýningarnar.
Fjallað er um málið í Suðurnesjamagasíni Sjónvarps Víkurfrétta í kvöld á sjónvarpsstöðinni Hringbraut.