Efnileg söngkona úr Sandgerði
Hanna Margrét Jónsdóttir nemandi í 9. BB í Grunnskólanum í Sandgerði hefur heldur betur verið að gera góða hluti að undanförnu. Síðustu helgi hafnaði hún í 3. sæti í landshlutamóti söngkeppni Samfés þar sem hún tók þátt fyrir hönd félagsmiðstöðvarinnar Skýjaborgar. Hún söng lagið „Líklega er ég ekki ein“ eftir Bríeti Sunnu Valdemarsdóttur. Með því tryggði hún sér þátttökurétt í söngvakeppni Samfés en þangað komast einungis 30 atriði af ríflega 100.
Áskrifendur Stöðvar 2 hafa líklegast einnig séð hana í hinum geysivinsælu þáttum „Ísland got talent“ en þar var hún hluti af stúlknasönghóp sem flaug beint í gegnum áheyrnarprufurnar við góðar undirtektir hjá dómnefndinni.
Það verður gaman að fylgjast með Hönnu Margréti í komandi verkefnum, því greinilega á hún framtíðina fyrir sér í söng.
Lag Bríetar Sunnu má heyra hér að neðan.