Dyslexia – nám og kennsla í framhaldsskólum
Fjölbrautaskóli Suðurnesja stendur fyrir ráðstefnunni Dyslexia – nám og kennsla í framhaldsskólum dagana 5. og 6. október næstkomandi. Ráðstefnan er hugsuð fyrir framhaldsskólakennara, kennara í efri bekkjum grunnskóla, námsráðgjafa, starfsmenn símenntunarmiðstöðva og aðra sem málið varðar.
Markmið ráðstefnunnar er að auka skilning á dyslexiu eða leshömlun og að efla og styrkja kennara í kennslu nemenda með dyslexiu. Ráðstefnan verður sett af Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, menntamálaráðherra. Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar er Gavin Reid, prófessor við Edinborgarháskóla, en hann er einn helsti sérfræðingur í Evrópu á þessu sviði. Hann hefur skrifað fjölda bóka og greina um dyslexiu og þær leiðir sem hægt er að fara í námi og kennslu. Auk þess hefur hann haldið fyrirlestra um efnið á ráðstefnum um allan heim. Reid mun halda erindi báða dagana sem hann kallar Dyslexia as a difference og Strategies for teaching and learning.
Auk fyrirlestra Reid verða í boði ýmsar smiðjur sem íslenskir sérfræðingar stjórna. Allar nánari upplýsingar um dagskrá og skráningu er að finna á heimasíðu FS www.fss.is