Dúxinn stefnir á flugnám
Bjarki Jóhannsson útskrifaðist úr FS með 9,18 í lokaeinkunn
Hinn 18 ára Bjarki Jóhannsson var hlaðinn verðlaunum við útskrift Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem fram fór á dögunum. Bjarki dúxaði enda með glæsibrag þar sem hann var með 9,18 í lokaeinkunn á stúdentsprófi. Hann bjóst ekki alveg við þessum góða árangri og átti ekki von á að hann yrði dúx. Þrátt fyrir hógværðina þá stóð hann sig bara ansi vel. Á þremur árum í FS náði Bjarki 20 sinnum á fá tíu í einkunn.
Bjarni ólst upp á Eskifirði og fluttist til Reykjanesbæjar eftir að grunnskólagöngu lauk árið 2013. Bjarki hefur þegar byrjað að feta framabrautina en hann lauk í fyrra einkaflugmannsnámi. Hann stefnir statt og stöðugt að því að verða atvinnuflugmaður enda hefur það verið draumur hans síðan hann var smá polli.
Stútendsprófið tók Bjarki á þremur árum samhliða einkaflugmannsnáminu. Eina önnina tók hann 41 einingu þá í fluginu og FS. Þá var lítill tími fyrir annað en námið að sögn Bjarka. Hann hefur alltaf átt gott með að læra og hlaut á sínum tíma viðurkenningu fyrir námsárangur þegar hann kláraði grunnskóla. Hann á auðvelt með að muna hlutina. Hann er fljótur að læra hlutina þannig að hann þarf ekki að liggja lengi yfir bókunum. Hann er hvað sterkastur í raungreinum en viðurkennir sjálfur að íslenskuna megi bæta. Bjarki lærði á píanó og gítar á sínum yngri árum auk þess sem hann æfði fótbolta. Nú er það hins vegar flugið sem er aðaláhugamálið.
„Það er skrítið að vera búinn með skólann en samt góð tilfinning,“ segir Bjarki léttur í spjalli við blaðamann Víkurfrétta. Hann er þegar kominn í sumarvinnu en hann verður starfsmaður á bílaleigu í Flugstöðinni í sumar. Næsta haust er svo stefnan tekin rakleiðis á atvinnuflugmanninn og varð flugakademía Keilis fyrir valinu. „Ég byrja bara strax í haust og ætla reyna að klára eins fljótt og hægt er svo ég komist í vinnu sem flugmaður sem fyrst,“ segir Bjarki. Þrátt fyrir að vera gríðarlega sterkur námsmaður þá heillar háskólalífið Bjarka ekki. Hann segist ekki sjá það fyrir sér og stefnir ótrauður á flugið.
Mikill stuðningur frá fjölskyldunni
Útskriftarveislan var vegleg og komu fjölmargir ættingjar að austan og fögnuðu áfanganum með Bjarka. Amma og afi voru einstaklega stolt af stráknum en Bjarki segir að afi sinn hafi verið duglegur að spyrja hann um námið. „Mamma og pabbi voru alltaf að fylgjast með lærdómnum mínum og að passa upp á að ég lærði heima og svona. Síðan var afi sem býr á Eskifirði alltaf að fylgjast með mér. Hann hringdi oft og spurði hvernig mér gengi í skólanum. Hann táraðist held ég gamli maðurinn þegar ég fékk öll verðlaunin. Svo í veislunni styrktu þau amma mig með mjög veglegri gjöf sem mun nýtast vel í flugnáminu. Þannig að fjölskyldan á miklar þakkir fyrir stuðninginn og á stóran part í þessu,“ segir Bjarki.
Hefði viljað vera busaður
Þrátt fyrir að hafa fyrst haft áhuga á því að stunda nám í Menntaskólanum í Reykjavík eða í Verslunarskólanum ákvað Bjarki að velja FS. Bjarka líkaði lífið mjög vel í FS. „Þetta var bara geggjað gaman. Félagslífið er búið að þróast mjög mikið síðan ég byrjaði,“ en Bjarki tók virkan þátt í því öllu saman. Í vetur var hann fyrirliði græna liðsins í starfshlaupinu ásamt Gunnari Degi Jónssyni. „Við lögðum gríðarlega vinnu í þetta sem skilaði sér því við unnum hlaupið en þetta var í fyrsta sinn í mjög langan tíma sem græna liðið vann.“
Árgangur Bjarka var sá fyrsti í FS sem fór ekki í gegnum hina alræmdu busavígslu. Bjarka þótti leitt að missa af því. „Það var leiðinlegt að missa af busuninni, ég hefði viljað vera busaður. Það hefði gefið mér góðar minningar,“ segir dúxinn að lokum.