Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Mannlíf

Dóttirin bjargaði föður sínum eftir hjartastopp
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 10. febrúar 2022 kl. 11:40

Dóttirin bjargaði föður sínum eftir hjartastopp

Elsa Albertsdóttir sýndi mögnuð viðbrögð þegar faðir hennar fór í hjartastopp. Hafði farið á þrjú skyndihjálparnámskeið.

„Hún gerir nú lítið úr þessu en viðbrögð hennar björguðu lífi mínu. Þrjú skyndihjálparnámskeið sem hún hafði sótt komu að góðum notum þegar hún þurfti að hnoða og bjarga kallinum,“ segir Albert Eðvaldsson, 57 ára fjölskyldufaðir úr Njarðvík en Elsa, tuttugu og eins árs dóttir hans er talin eiga stærsta þátt í því að hann er enn meðal vor eftir að hafa farið í hjartastopp í lok ágúst í fyrra. Þetta afrek Elsu hefur heldur betur vakið athygli því hún er tilnefnd sem Skyndihjálparmaður ársins á Íslandi. „Ég byrjaði bara að hnoða á fullu, taldi upp í þrjátíu og reyndi að blása á milli en það gekk illa því pabbi var með munninn fastan saman. Svo benti konan í neyðarlínunni, sem var í símasambandi að það gæti verið gott að skiptast á að hnoða því það væri erfitt fyrir einn að gera það lengi. Ég sagði bara, nei, og hélt áfram og sagði afa að reyna blástur á milli hnoða en það var ekki að ganga.“

Þau feðgin fara yfir málið í Víkur-fréttum og verða einnig í Suðurnesjamagasíni vikunnar.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Sjá viðtalið við feðginin í Víkurfréttum sem kom út í vikunni.