Dönsuðu með bæjarstjóra og fræðslustjóra
Hamingjusamir krakkar á Holti
Börnin á leikskólanum Holti eru svo hamingjusöm að þau geta ekki annað en dillað sér af gleði og dansað við vorið líkt og sjá má af myndbandi sem nemendur og kennarar gerðu í tilefni þess að Leikskólinn Holt er að fá Evrópu verðlaun fyrir etwinning verkefnið sitt.
Fölskvalaus gleði barnanna er greinilega bráðsmitandi því auk nemenda, kennara og foreldra á Holti má meðal annarra sjá þá Gylfa Jón Gylfason fræðslustjóra og bæjarstjóra Reykjanesbæjar, Árna Sigfússon bregða undir sig betri fætinum og dansa með börnunum.