Diskurinn Ljósalagið 2004 kominn út

Guðbrandur Einarsson formaður Ljósalagsnefndarinnar afhenti diskinn formlega Rúnari Arnarssyni formanni Knattspyrnudeildar Keflavíkur en meistaraflokkur kvenna mun sjá um sölu hans. Gengið verður í hús auk þess sem diskurinn verður boðinn til sölu í Stapa í kvöld sem og á Ljósanótt.
Upptökur fóru fram í Geimsteini undir stjórn Jóns Ólafssonar. Um upptöku sáu Sigurður Guðmundsson og Kristinn Jónsson.
Í Ljósanætur nefnd sitja ásamt Guðbrandi Baldur Guðmundsson og Steinþór Jónsson.
Bein útsending frá keppninni hefst kl. 22:00 á Tónlist.is en þar er jafnframt hægt að kjósa lag. Atkvæði netkosningar hefur 25% vægi á móti kosningu í sal í Stapa og niðurstöðum sérstakrar fagdómnefndar.
Í kvöld koma fram flytjendurnir Ardís Ólöf, Helgi Björnsson, Regína Ósk, Hreimur Örn, Berglind Berman, Védís Hervör, Rakel Axelsdóttir, Friðrik Ómar, Sigríður Guðnadóttir og hljómsveit undir stjórn Jóns Ólafssonar. Boðið verður upp á glæsilegan matseðil með sjávarréttasúpu í forrét, fylltar grísalundir í aðalrétt og ljósalagsdesert.
Miðasala fer fram í Stapa í síma 421 7220 og 421 2526 en nú þegar hafa um 170 manns tryggt sér miða.