Bygg
Bygg

Mannlíf

Davíð Þór Sveinsson: „Stefni á að koma lagi í spilun“
Laugardagur 9. apríl 2011 kl. 11:03

Davíð Þór Sveinsson: „Stefni á að koma lagi í spilun“

Davíð Þór Sveinsson var söngvari og bassaleikari í keflvísku hljómsveitinni Skyreports sem breiddi yfir „Ofboðslega Frægur,“ með Stuðmönnum hér um árið. Hljómsveitin sigraði einnig Rokkstokk nú á síðasta ári en lögðu svo fljótlega upp laupana. Davíð sem er 23 ára var að koma aftur til heimahaganna í Keflavík eftir dvöl í Kaupmannahöfn þar sem hann stundaði nám í flugvirkjun.

„Ég var að koma frá Kaupmannahöfn í Danmörku þar sem að ég er að læra Flugvirkjann. Og nú þarf ég að fá samning til þess að geta haldið áfram í náminu. Ég reyni að sjálfsögðu að komast á samning hér á Íslandi, ef ekki þá gæti ég skoðað önnur flugfélög úti heimi. Það gæti verið virkilega spennandi líka. Flugvirkinn er fjögurra og hálfs árs nám þannig að ég verð með annan fótinn þar í þó nokkur ár til viðbótar,“ segir Davíð um framtíðaráform sín.

Davíð var sjálfur að semja helling af tónlist sem hentaði kannski ekki alltaf fyrir Skyreports og nú stefnir hann á að koma lagi í spilun.
„Fljótlega eftir að við hættum og ég fór út til Köben ákvað ég að byrja taka upp nokkur lög. Ég kunni ekkert að taka upp en ég fikraði mig eitthvað áfram. Ég hef ekki lagt hljóðfærið á hilluna og ætla mér að halda áfram í tónlistinni. Stefnan hjá mér núna er að fara í hljóðver og taka upp eitt lag til að byrja með, og koma því í spilun.“

Hér má nálgast tónlist Davíðs á Facebook og Myspace.

Davíð segir reynsluna af búsetu erlendis vera öllum til bóta. „Það er virkilega gaman að fara svona útí heim og prufa eitthvað nýtt. Ég skemmti mér konunglega í Köben þó að gengið sé ekki að gera góða hluti í dag. Þar má nefna að hálfur líter af gosi kostar 400 íslenskar krónur.“

Davíð furðar sig sérstaklega á tónlistarsmekk þeirra Dana. „Ég kíkti oft útí bæ um helgar og á flestum skemmtistöðunum var spiluð tónlist frá árunum 1995-2001. Við erum að tala um að Macarena fékk að hljóma á nokkrum stöðum, Ég hélt að það væri bannað í dag. Ég var ekki alveg að skilja það en danirnir eru svo „ligeglad“ með þetta allt saman.

Í sumar verður mikið að gera hjá Davíð, hann verður að vinna hjá DHL og ætlar sér einnig að reyna halda einhverja tónleika. Í ágúst ætlar henn sér að fara til Köln og vera þar í nokkra daga og fer svo þaðan með lest til Parísar.

Bílakjarninn
Bílakjarninn


Davíð Þór hefur smekk fyrir:


Bókin
„Blink 182 gaf út bók seem heitir Tales from beneath your mom. Það er virkilega góð bók.“


Íþróttamaður
„Viktor Guðnason fótboltamaður hjá Njarðvík þegar að hann er ekki meiddur,“ en Davíð Þór vildi endilega bæta þessari spurningu við.

Bitinn
„Kebabinn í Köben er góður. Svo á Nonnabiti ekki séns í Olsen Olsen.“


Tónlist
Ég hlusta roslega mikið á allskyns tónlist. Einna helst hlusta ég á John Mayer, sá snillingur er virkilega góður og hvet ég alla til þess að kynna sér hann. Hlusta líka mikið á Gavin Degraw og Michael Bublé.

Davíð hægra megin á myndinni ásamt Gavin Degraw


Kvikmyndin
Davíð segist fara mikið í bíó með strákunum. „Síðasta mynd sem ég sá var Battle: Los angeles sem fer ekki á toppinn með mínum uppáhalds myndum, viriklega slæm mynd þar á ferð. Ætli ein af mínum uppáhalds sé ekki Home Alone. Svo verður maður að hafa Rockstar inní þessu líka. Og svo hef ég hef lúmskt gaman af B-myndum stundum.“


Þátturinn
„Modern family er uppáhaldsþátturinn minn. Svo horfi ég á Chuck, Family Guy, Southpark og margt fleira.“


Vefsíðan
„Þetta er netrúnturinn: Facebook, Soundcloud.com, hotmail.com, vf.is, dv.is,“ sagði Davíð Þór að lokum.




EJS