Dansleikur í Festi
Í kvöld verður dansleikur í Festi í Grindavík í tilefni Sjóarans síkáta og mun hljómsveitin Í svörtum fötum leika fyrir dansi. Jónsi og spilasveinar hans svíkja engan á balli og því von á margmenni. Aldurstakmark er 18 ára og kostar kr. 1800,- inn á ballið.
Í dag og á morgun standa yfir veigamikil hátíðahöld í Grindavík þar sem öll fjölskyldan ætti að finna eitthvað við sitt hæfi. Til dæmis verður boðið upp á hestaferðir, hoppurólur, kraftakeppni, kaffihlaðborð, golfmót og margt margt fleira. Hægt er að skoða ítarlega dagskrá um hátíðina með því að smella hér.