Danskt Big-band og Léttsveit TR í Stapa
Sunnudaginn 14. október n.k. kl. 16.00 mun Stórsveit Sct. Mariae Skole í Álaborg í Danmörku, Sct. Mariae Skoles Bigband, halda tónleika í Stapa ásamt Léttsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Danska stórsveitin verður í heimsókn hér á landi dagana 12. til 19. október og auk tónleikanna í Stapa, mun Sct. Mariae Skoles Bigband leika við messu í Keflavíkurkirkju n.k. sunnudag kl. 11 n.k. Einnig mun sveitin halda tvenna skólatónleika í Reykjavík auk tónleika með Skólahljómsveit Austurbæjar í Reykjavík í Guðríðarkirkju miðvikudagskvöldið 17. október sem og tónleika á torginu í tónlistarhúsinu Hörpu, fimmtudaginn 18. október kl.12.15.
Hljóðfæraleikararnir í Sct. Mariae Skoles Bigband eru 30 talsins á aldrinum 13 – 17 ára og það eru hljóðfærakennarar frá Listaskóla Álaborgar, Aalborg Kultur Skole, sem kenna nemendunum. Auk þess stendur mjög öflugt foreldrafélag að baki hópnum. Við Sct. Mariae Skole er einnig starfrækt yngri stórsveit, sem nokkurs konar uppeldishljómsveit fyrir eldri sveitina.
Sct. Mariae Skoles Bigband hefur haldið fjölda tónleika utan Danmerkur, m.a. í Þýskalandi, Austurríki, Frakklandi, Bandaríkjunum og Póllandi.
Stórsveitin leikur tónlist í ýmsum stíltegundum, sveiflu, rokk og popp, en það er athyglisvert að sveitin hefur einnig kirkjulega tónlist á efnisskrá sinni og nýtir hana þegar það á við.
Léttsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar er ein af fremstu stórsveitum landsins og hefur borið hróður Reykjanesbæjar og Tónlistarskólans síns víða, bæði innan lands sem utan. Léttsveitin kemur fram opinberlega marg oft á ári af margs konar tilefnum, bæði á vegum Reykjanesbæjar og Tónlistarskólans. Sveitin tekur árlega þátt í Stórsveitadeginum sem Stórsveit Reykjavíkur hefur staðið fyrir um árabil og jafnan vakið verðskuldaða athygli fyrir leik sinn, lagaval og framkomu.
Léttsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar hefur margoft farið í tónleikaferðir til útlanda, m.a. til Bermúdaeyja, Spánar og nokkrum sinnum til Bandaríkjanna. Nú í sumar sem leið, var Léttsveitinni boðið að að leika á heimsráðstefnu International Society of Music Education, ISME, sem fram fór í borginni Þessaloniki á Grikklandi. Tónlistarskólanum og Léttsveitinni var með því boði sýndur mikill heiður. Auk þess að leika á ISME ráðstefnunni, hélt sveitin tónleika viðar um Grikkland.
Á tónleikunum í Stapa á sunnudaginn kemur, munu Sct. Mariae Skoles Bigband og Léttsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar leika sitt hvora efnisskrána, en síðan munu sveitirnar leika saman nokkur lög. Það er gaman að geta þess að þær munu frumflytja nýtt tónverk; verk fyrir 2 big-bönd, sem var samið sérstaklega fyrir þessar stórsveitir af danska tónskáldinu Jesper Riis. Verkið byggir á íslenskum og dönskum lögum sem sett eru fram í eins konar syrpu. Verkið var samið með styrk frá Menningarsjóði norðurlandaráðs.
Stjórnendur stórsveitanna eru Gert Norgaard, tónlistarkennari við Sct. Mariae Skole og Karen J. Sturlaugsson, aðstoðarskólastjóri Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.