Bygg
Bygg

Mannlíf

Danshátíð að Ásbrú á morgun
Föstudagur 19. mars 2010 kl. 19:32

Danshátíð að Ásbrú á morgun

Áhugafólk um dans ætti að taka frá morgundaginn því þá verður haldin fyrsta dansbikarkeppnin í Reykjanesbæ. Keppnin verður í ANDREWS leikhúsinu að Ásbrú en húsið hefur verið tekið í gegn frá A-Ö og skartar nú nýju risastóru sviði sem nýtist meðal annars mjög vel fyrir dansýningu og keppni eins og á morgun. Þá hefur verið sett upp flott lýsing í húsið og hljómburðurinn er við hæfi.

Bílakjarninn
Bílakjarninn


Dansbikarkeppnin er skipulögð af Listdansskóla Reykjanesbæjar sem rekur myndarlegan dagsskóla að Ásbrú. Undanfarnar vikur hafa dansarar æft af kappi en keppt verður í þremur aldursflokkum á morgun. Keppt verður í aldursflokkunum 10-12, 13-15 og 16 ára og eldri, bæði í hópa- og einstaklingskeppni.


Bryndís Einarsdóttir danskennari og skólastjóri BRYN Ballett Akademíunnar segir í samtali við Víkurfréttir að öll dansatriðin sem verða á morgun séu frumsamin af nemendum sjálfum, en nemendurnir hafa einnig valið tónlistina og gera búninga.


Um 30 atriði verða sýnd og það verður því mikil vinna sem bíður fimm manna dómnefndar, sem meðal annars þarf að velja frumlegustu og flottustu atriðin. Verðlaunapeningar og farandgripir er það sem keppt verður um á morgun.


Hægt verður að kaupa miða við innganginn í ANDREWS leikhúsinu á morgun en miðaverði er stillt í hóf og kostar aðeins 500 krónur inn á danshátíðina sem hefst stundvíslega kl. 14:00. Ástæða er til að hverja Suðurnesjafólk til að fjölmenna og sjá það blómstrandi danslíf sem er í dansskólanum hjá Bryndísi Einarsdóttur.



Myndir frá jólasýningu BRYN Ballett Akademíunnar í Andrews-leikhúsinu. Leikhúsið hefur nú gengið í gegnum miklar breytingar og skartar nú mun stærra sviði þar sem dans mun njóta sín vel. Víkurfréttamyndir: Hilmar Bragi Bárðarson