Sjómannakveðjur 3
Sjómannakveðjur 3

Mannlíf

Dansbikarkeppni í Andrews-leikhúsinu í dag
Laugardagur 20. mars 2010 kl. 08:43

Dansbikarkeppni í Andrews-leikhúsinu í dag

- og fjölbreytt starf framundan hjá Bryndísi Einars

Fyrsta dansbikarkeppnin í Reykjanesbæ verður haldin í dag. Keppnin verður í ANDREWS leikhúsinu að Ásbrú og hefst kl. 14:00. Miðasala á keppnina hefst í ANDREWS kl. 13:00 og kostar 500 krónur inn. Leikhúsið að Ásbrú hefur verið tekið í gegn frá A-Ö og skartar nú nýju risastóru sviði sem nýtist meðal annars mjög vel fyrir dansýningu og keppni eins og á morgun. Þá hefur verið sett upp flott lýsing í húsið og hljómburðurinn er við hæfi.


Dansbikarkeppnin er skipulögð af Listdansskóla Reykjanesbæjar sem rekur myndarlegan dagsskóla að Ásbrú. Undanfarnar vikur hafa dansarar æft af kappi en keppt verður í þremur aldursflokkum á morgun. Keppt verður í aldursflokkunum 10-12, 13-15 og 16 ára og eldri, bæði í hópa- og einstaklingskeppni.

Bílakjarninn
Bílakjarninn


Bryndís Einarsdóttir danskennari og skólastjóri BRYN Ballett Akademíunnar segir í samtali við Víkurfréttir að öll dansatriðin sem verða á morgun séu frumsamin af nemendum sjálfum, en nemendurnir hafa einnig valið tónlistina og gera búninga.


Um 30 atriði verða sýnd og það verður því mikil vinna sem bíður fimm manna dómnefndar, sem meðal annars þarf að velja frumlegustu og flottustu atriðin. Verðlaunapeningar og farandgripir er það sem keppt verður um á morgun.


Hægt verður að kaupa miða við innganginn í ANDREWS leikhúsinu á morgun en miðaverði er stillt í hóf og kostar aðeins 500 krónur inn á danshátíðina sem hefst stundvíslega kl. 14:00. Ástæða er til að hverja Suðurnesjafólk til að fjölmenna og sjá það blómstrandi danslíf sem er í dansskólanum hjá Bryndísi Einarsdóttur.


Það er heilmargt um að vera næstu vikurnar hjá Bryn Ballett Akademíunni, strax eftir páska hefst Salsa, 6. vikna sjóðheitt námskeið fyrir pör og einstaklinga. Það verður frír kynningartími haldinn miðvikudaginn 7. apríl og er skráning hafin fyrir námskeiðið á netfangið: [email protected]


Sumarönnin hjá BRYN hefst 26. apríl og stendur til 31. júlí (og stendur yfir í 14 vikur).


Vorsýning nemenda verður í endaðan maí í Andrews leikhúsinu, þar sem allir nemendur taka þátt. Gestakennarar koma í heimsókn yfir sumarönnina og kenna ýmsa dansstíla. Áfram verður í boði dans fyrir allan aldur, frá 3ja ára og uppúr; Ballett, Jazzballett, Nútímadans, Breik, Steppdans, Salsa og fleira.


Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu skólans www.bryn.is