Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Mannlíf

Dagur tónlistarskólanna haldinn hátíðlegur
Laugardagur 11. febrúar 2017 kl. 12:31

Dagur tónlistarskólanna haldinn hátíðlegur

Tónlistarskólar landsins eru um níutíu talsins. Í þeim fer fram gríðarlega fjölbreytt og öflugt starf og á árlegum hátíðisdegi þeirra, Degi tónlistarskólanna, efna skólarnir til ýmis konar viðburða til að brjóta upp skólastarfið og vekja athygli á starfsemi sinni. Markmiðið er að auka sýnileika og styrkja tengsl tónlistarskóla við nærsamfélagið. Dagur tónlistarskólanna er haldinn annan laugardag í febrúar ár hvert, sem að þessu sinni ber upp á þann 11. febrúar.
 
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar heldur Dag tónlistarskólanna hátíðlegan með fjölbreyttri dagskrá frá klukkan 10:30 til 15:30. Dagskráin fer fram í Hljómahöllinni og hefst í Stapa klukkan 10:30 með tónleikum nemenda Forskóla 2, sem eru börn í 2. bekk grunnskólanna. Undirleik á tónleikunum annast hljómsveit skipuð kennurum og nemendum skólans. Að tónleikunum loknum fá forskólanemendurnir hljóðfærakynningar og prufutíma á hljóðfæri á efri hæð Tónlistarskólans.
 
Klukkan 11:00 hefjast aðrir dagskrárliðir, þar sem til skiptis verða keppnir í tónfræðum milli tónfræðibekkja, sem fara fram í Stapa, og svo ör-tónleikar sem haldnir verða í Bergi. 
 
Kaffihús Strengjadeildar verður starfrækt frá klukkan 10:45 til 15:30 en í boði verða veitingar á vægu verði. Ágóðinn rennur í ferðasjóð strengjadeildar.
 
Dagskráin í heild sinni með tímasetningum hvers viðburðar, er á vefsíðu skólans tonlistarskoli.reykjanesbaer.is og á Facebook-síðu hans. Sjá einnig á vef Reykjanesbæjar og Facebook-síðu bæjarins.
 
Bæjarbúar og aðrir áhugasamir eru eindregið hvattir til að kynna sér dagskrá Tónlistarskóla Reykjanesbæjar á þessum hátíðisdegi íslenskra tónlistarskóla, kíkja við og njóta þess sem í boði er.
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024