Dagur tónlistarskólanna
Hljóðfærakynning fyrir Forskóla 2 í tilefni Dags tónlistarskólanna
Tónlistarskólar landsins eru um 90 talsins og standa fyrir fjölbreyttu og öflugu skólastarfi. Dagur tónlistarskólanna er haldinn 7. febrúar ár hvert en það er fæðingardagur Gylfa Þ. Gíslasonar sem var menntamálaráðherra á árunum 1956–1971. Gylfi hefur gjarnan verið kallaður „faðir íslenskra tónlistarskóla“ en hann kom því í gegn í ráðherratíð sinni að sveitarfélög sem hefðu hug á því að stofna tónlistarskóla fengju til þess styrk úr ríkissjóði sem næmi ákveðnum hluta launakostnaðar. Síðar var þessum lögum breytt á þann veg að launastyrkur ríkisins var aukinn, sem varð sveitarfélögum enn meiri hvatning til að koma tónlistarskólum á fót og þá fjölgaði þeim umtalsvert. Íslenskt tónlistarlíf og -menntun mun alla tíð búa að framsýni Gylfa Þ. Gíslasonar og áhuga hans á aukinni og markvissri tónlistarmenntun þjóðarinnar.
Í tilefni af Degi tónlistarskólanna efna íslenskir tónlistarskólar til ýmiss konar viðburða með það að markmiði að auka sýnileika og styrkja tengsl við nærsamfélagið. Tónlistarskóli Reykjanesbæjar er enginn eftirbátur þar og í tilefni af Degi tónlistarskólanna efnir skólinn til hljóðfærakynningar í tónlistarskólanum laugardaginn 11. febrúar n.k. fyrir Forskóla 2, sem eru öll börn í 2. bekk grunnskólanna. Dagskráin hefst kl.10:30 með stuttum tónleikum forskólanemendanna, þar sem þeir flytja tvö stórskemmtileg lög við undirleik kennarahljómsveitar tónlistarskólans. Að tónleikunum loknum fá forskólanemendurnir kynningu á þeim hljóðfærum sem hæfa svo ungum börnum að hefja nám á að forskólanáminu loknu. Það verða kennarar tónlistarskólans sem sjá um kynningarnar. Nemendur forskólans mega jafnframt prófa hljóðfærin og munu tónlistarkennararnir leiðbeina þeim við það. Hljóðfærakynningunni, og þar með dagskránni, lýkur kl.12:15.