Dagur leikskólans á morgun
Við bjóðum góðan dag alla daga.
Dagur leikskólans þann 6. febrúar er nú haldinn í sjötta sinn. Dagurinn er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, Félags stjórnenda leikskóla, mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla.
Af þessu tilefni verður farið í ljósagöngu frá leikskólanum Holti að Akurskóla þar sem nokkur lög verða sungin fyrir grunnskólanemendur. Leikskólabörnin verða með ljós. Tilgangur ljóssins er að varpa ljósi á leikskólabarnið og mikilvægi leikskólans í samfélaginu. Gengið verður frá leikskólanum Holti kl.9:00 og síðan verður opið hús á Holti frá kl.10:00-11:00 þar sem við bjóðum gestum og gangandi að koma og kynna sér leikskólastarfið og gleðjast með barninu.