Dagur íslenskrar tungu hjá Keili
Í tilefni af degi íslenskrar tungu, þriðjudaginn 16. nóvember, verður hátíðardagskrá í hádeginu í Salnum hjá Keili. Benedikt Bóas Hinriksson les ljóð eftir Jónas Hallgrímsson og Vilborg Rós Eckard syngur Íslenskuljóðið. Benedikt og Vilborg eru bæði nemendur í Keili. Dagskráin hefst kl. 12:00.
Dagur íslenskrar tungu hefur verið haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, 16. nóvember, samkvæmt tillögu menntamálaráðherra frá árinu 1996. Þann dag eru árlega veittar viðurkenningar fyrir störf í þágu íslensks máls og efnt til margvíslegra menningarviðburða.