Dagskrá Þrettándagleði í Reykjaneshöll
Ákveðið hefur verið að færa dagskrá Þrettándagleði í Reykjaneshöll, en síðustu hefur dagskráin verið við álfabrennu að Iðavöllum. Frá klukkan 18 til 19 verður boðið upp á andlitsmálun og klukkan 19 hefst fjölbreytt skemmtidagskrá fyrir yngstu kynslóðina. Þar verður tónlist, söngur, grín og glens, álfakóngur og drottning, púkar, Grýla og Leppalúði og jólasveinar mæta á svæðið. Karlakór Keflavíkur, Kvennakór Suðurnesja og Lúðrasveit Tónlistarskólans verða með tónlistaratriði. Boðið verður upp á heitt kakó í Reykjaneshöllinni.
Klukkan 20:30 hefst skrúðganga frá Reykjaneshöll að Iðavöllum og klukkan 21:00 verður Álfbrenna kveikt og jólin kvödd. Björgunarsveitin Suðurnes mun sjá um flugeldasýningu.
VF-ljósmynd/HBB: Frá þrettándagleði í Reykjaneshöll í janúar 2003.