HSS
HSS

Mannlíf

Café Iðnó á Hótel Keflavík tekur þátt í heilsuviku
Miðvikudagur 23. september 2009 kl. 10:46

Café Iðnó á Hótel Keflavík tekur þátt í heilsuviku


Café Iðnó er eini veitingastaðurinn sem tekur þátt í heilsu- og forvarnarviku Reykjanesbæjar. Staðurinn býður uppá nýjan matseðill ásamt heilsu- og grænmetisréttum af þessu tilefni. Í hádeginu hefur Lífsstíls-Seðillinn göngu sína en hann er gerður í samstarfi við einkaþjálfara Lífsstíls. Þessi matseðil verður í boði út alla vikuna frá klukkan 12:00 – 17:00 og því tilvalið að skella sér í léttan og heilsuríkan hádegisverð sem mun bæði kitla bragðlaukana og stuðla að bættri heilsu. Þetta er léttur og próteinríkur matseðill þar sem öll næringargildi eru tekin fram á seðlinum.

Í framhaldinu verður þessi skemmtilegi matseðill í boði ásamt öðrum nýjum réttum á matseðli Café Iðnó. Á morgnana er nú boðið uppá glæsilegan morgunverð á Hótel Keflavík frá klukkan fimm á morgnana og hefur aðsókn bæjarbúa aukist jafnt og þétt. Í hádeginu verður síðan boðið uppá ofangreindan matseðil ásamt hefðbundnum réttum. Þá er boðið uppá kaffistemmingu með kökum, tertum og smurbrauði til klukkan 18 en þá tekur a la carte seðill Café Iðnó við.
Nýr veitingastjóri Café Iðnó Bjarney Lea Guðmundsdóttir hefur séð um útfærslu á þessum réttum ásamt kokkum frá Suður-Ameríku og Tékklandi.



Bílakjarninn
Bílakjarninn