Bygg
Bygg

Mannlíf

Bylgjan og Rás 2 undir sama þaki
Föstudagur 2. september 2011 kl. 17:20

Bylgjan og Rás 2 undir sama þaki

Turnarnir tveir á íslenskum útvarpsmarkaði, Bylgjan og Rás 2, eru báðir með útsendingar á síðdegisútvarpsþáttum sínum frá Reykjanesbæ nú í dag. Það sem vekur athygli er að stöðvarnar eru báðar að senda þætti sína úr sama húsinu, DUUShúsum í Reykjanesbæ.

Þátturinn Reykjavík síðdegis, sem í dag kallast Reykjanesbær síðdegis, er sendur út frá sýningarsal Varnarliðssýningarinnar en Síðdegisútvarpið á Rás 2 er sent frá Kaffi DUUS.

Útvarpsstöðvarnar tvær hafa báðar verið að senda út frá Reykjanesbæ í dag og verða einnig á morgun með yfirgripsmikla dagskrá frá Ljósanótt í Reykjanesbæ.



Myndirnar voru teknar á síðustu klukkustund í útsendingu stöðvanna.
VF-myndir: Hilmar Bragi Bárðarson

Bílakjarninn
Bílakjarninn