Bygg
Bygg

Mannlíf

Bullandi nostalgía og feikna stemmning
Fimmtudagur 27. apríl 2006 kl. 11:09

Bullandi nostalgía og feikna stemmning

- Alli og Elli koma loks saman á Bergáskvöldi á laugardagskvöldið.

Núna á laugardagskvöldið verður hið feiknavinsæla Bergáskvöld haldið í Stapa, en það hefur verið árlegur viðburður undanfarin ár. Í þetta skiptið ber svo við að loksins hefur tekist að ná saman þeim plötusnúðum sem héldu uppi stemmningunni á sínum tíma, þeim Aðalsteini Jónatanssyni og Ellerti Grétarssyni, eða Alla og Ella. Þeir félagar hafa ekki spilað saman á Bergáskvöldi síðan það var haldið fyrst eftir miðjan 9. áratuginn í Glaumbergi og ætla þeir að bregða sér í gamla fílinginn á laugardagskvöldið og halda uppi stemmningunni eins og hún var forðum daga.

„Ég sagði eftir Bergáskvöldið í fyrra að það væri mitt síðasta, fannst þetta vera orðið ágætt. En núna þegar ég frétti að Elli væri kominn aftur heim eftir langa fjarveru gat ég ekki hugsað mér annað en að taka eitt Bergáskvöld í viðbót með honum því hans hefur verið sárt saknað á þeim Bergáskvöldum sem haldin hafa verið undanfarin ár. Hann var til í þetta og þess vegna ætlum við að halda eitt Bergáskvöld í viðbót en það verður líklega ekki endurtekið“, sagði Alli í samtali við VF.

Þeir Alli og Elli héldu uppi stuðinu í Bergás í upphafi 9. áratugarins. Undir miðjan áratuginn lognaðist Bergás út af en þeir héldu áfram að spila í sitthvoru lagi á ýmsum skemmtistöðum. Elli varð síðan plötusnúður í Glaumbergi þegar það opnaði 1986 og fékk Alla til að koma og spila með sér á Bergáskvöldi sem þar var haldið, líklega tveimur árum seinna. Það var fyrsta Bergáskvöldið og upp frá því spiluðu þeir saman í Glaumbergi á meðan það var og hét. Leiðir skildu síðan undir lok 9. áratugarins þegar Elli hætti í bransanum og Alli réðist á Hótel Ísland þar sem hann ríkti í mörg ár sem plötusnúður, ljósameistari, tæknimaður, sviðsstjóri og leikmyndahönnuður.

„Ég hef auðvitað ekki komið nálægt þessu í ansi mörg ár, þannig að hvernig mér tekst að komast í gamla gírinn verður að koma í ljós. Ég eiginlega verð að gera það ef maður á ekki bara að enda sem einhver gogo-stelpa á sviðinu hjá Alla. En allavega verð ég þarna svona upp á lúkkið ef ekki vill betur“, segir Elli og bætir við að þetta verði samt örugglega gaman. Mikill undirbúningur er fyrir laugardagskvöldið í Stapa og er búið að taka á leigu gríðarlegan ljósabúnað og hljóðkerfi eins og það gerist best. Eingöngu hljóðkerfið er tvöfalt stærra en það sem vinsælustu popphljómsveitir landsins nota á tónleikum. Enda á að taka þetta með trukki og dýfu með glæsilegri umgjörð. Hið geðþekka tæknitröll, Halldór Jóhannesson, verður þeim félögum til halds og trausts og kemur til með að sjá um tæknimálin, bæði hvað varðar hljóð, ljós og effekta. Hann er ekki óvanur því, búinn að koma að mörgum tónleikum með jafnt lítið þekktum sem heimsþekktum hljómsveitum auk þess sem hann hefur verið með Alla á Bergáskvöldum undanfarinna ára.

Að sögn þeirra félaga verður lagavalið mest miðað við tímabilið 1978-1984 en ekki er óhugsandi að eitt og eitt lag frá Glaumbergstímanum fái að fljóta með. Það verður því bullandi nostalgía og feikna stemmning í Stapanum á laugardagskvöldið.
Bílakjarninn
Bílakjarninn