Búddahof opnað á Suðurnesjum
Búddahof var á dögunum opnað við Tjarnargötu í Reykjanesbæ. Hofið er á vegum Wat Buddha Ísland. Í hofinu er boðið upp á kennslu í hugleiðslu daglega frá klukkan 18 til 19 og eru allir hjartanlega velkomnir.
Hofið var formlega opnað á dögunum með hátíðlegri athöfn. Fjöldi fólks mætti og gerði sér glaðan dag eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.