Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Föstudagur 29. janúar 1999 kl. 21:33

BRÚÐUBÍLLINN Í NÝJA BÍÓI UM HELGINA

Brúðubíllinn sýnir í Nýja Bíói, Hafnargötu 33 leikritið BRÚÐUR,TRÖLL OG TRÚÐAR og fleiri brúðuleikrit m.a. þáttur um „hvernig verður brúða til” Leikstjóri sýningarinnar er Sigrún Edda Björnsdóttir leikkona og leikstjóri. Brúðuleikritið BRÚÐUR,TRÖLL OG TRÚÐAR er byggt upp á stuttum leikþáttum, söngatriðum og skemmtiþáttum. Það er gleðin og grínið sem ræðum ríkjum en fræðslan er alltaf með. Við sjáum lítinn söngleik um hafið, því eins og við vitum öll var árið 1998 ár hafsins. Leikritið um tröllið og geiturnar þrjár í nýrri leikgerð og við veltum fyrir okkur hvað er ímyndun og hvað er raunveruleiki. Börnin eru virk eins og alltaf í leikhúsi Brúðubílsins. Handrit og brúðurnar eru eftir Helgu Steffensen og hún stjórnar þeim ásamt brúðuleikurunum Sigrúnu Erlu Sigurðardóttur og Herði Svanssyni. Mikill fjöldi brúða kemur fram í sýningunni og eru þær af öllum gerðum og stærðum. Það eru leikararnir Pálmi Gestsson, Júlíus Brjánsson, Sigrún Edda Björnsdóttir og Helga Steffensen sem tala fyrir brúðurnar.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024