Brother Grass og Eldar á tónleikum í Hlöðunni
Hugguleg stemmning með Brother Grass og Eldar verður á tónleikum í Hlöðunni í Vogum miðvikudaginn 11. júlí nk. kl. 20:00.
Brother Grass spilar bluegrass, blús, folk, old time mountain hilbilly music í bland við frumsamið efni. Þvottabrettið verður mundað, gítarhvíslarinn framkallar eitthvað undravert, þvottabalanum refsað og raddböndin þanin. Hljómsveitina skipa Ösp Eldjárn, Sandra Dögg Þorsteinsdóttir, Soffía Björg Óðinsdóttir, Hildur Halldórsdóttir og Örn Eldjárn.
Eldar er hliðarverkefni Valdimars og Björgvins Ívars. Hljómsveitina, ásamt þeim, skipa Stefán Örn Gunnlaugsson, Sigtryggur Baldursson, Fríða Dís Guðmundsdóttir og Örn Eldjárn. Aðgangseyrir er
1500 krónur.
Hlaðan er staðsett við Egilsgötu 8 í Vogum aftan við bæinn Minni-Voga.