Brosandi vinningshafar í Jólalukku VF
Yfir sexþúsund vinningar voru „skafðir“ í Jólalukku Víkurfrétta 2023. Þá voru 62 vinningar dregnir út úr mörg þúsundum miða sem skilað var í Nettó. Þar á meðal voru veglegir vinningar eins og sjónvörp, inneignir í Nettó, hótelvinningar, raftæki og fleira.
Á vf.is og í prentútgáfu Víkurfrétta milli jóla og nýárs eru nöfn allra vinningshafa úr útdráttunum þremur. Vakin er athygli á því að sækja þarf suma vinninga fyrir ákveðinn tíma.