Bygg
Bygg

Mannlíf

Breiðbandið og Helga Braga í samstarf við Leikfélag Keflavíkur
Þriðjudagur 15. janúar 2008 kl. 10:03

Breiðbandið og Helga Braga í samstarf við Leikfélag Keflavíkur

Nú eru að hefjast æfingar á "brjálæðislega skemmtilegu leikverki", eins og segir í tilkynningu, sem samið er af þeim Breiðbandsfélögum; Magnúsi Sigurðssyni, Ómari Ólafssyni og Rúnari Hannah. Gamanleikkonan Helga Braga Jónsdóttir mun leikstýra en hún hefur áður leikstýrt einni af fjölsóttustu leiksýningu sem Leikfélag Keflavíkur hefur verið sett á svið. Það má teljast öruggt að þetta verður ein af skemmtilegustu sýningum sem hafa sést á fjölum Frumleikhússins til þessa, þar sem söngur og grín ráða ríkjum og gert verður góðlátlegt grín að náunganum og jafnvel þér.
Næstkomandi fimmtudagskvöld, 17. janúar kl. 20:00, verður fyrsti samlestur þar sem höfundar og leikstjóri kynna verkið. Allir þeir sem hafa áhuga á að vera með í uppsetningu þessari, og eru fæddir á árinu 1990 eða fyrr, eru hvattir til að mæta í Frumleikhúsið umrætt kvöld.


 

Mynd: Breiðbandið og Helga Braga getur ekki verið annað en góð blanda.



Bílakjarninn
Bílakjarninn