HSS
HSS

Mannlíf

Brassskotið popp með dökku ívafi
Fimmtudagur 9. desember 2010 kl. 16:02

Brassskotið popp með dökku ívafi

Hljómsveitin Valdimar sendi frá sér fyrstu plötu sína á dögunum og ber hún nafnið Undraland. Platan hefur fengið prýðis viðtökur og hefur til að mynda lagið Hverjum degi nægir sín þjáning hljómað ótt og títt á öldum ljósvakans.

Meðlimir poppsveitarinnar Valdimar, sem eru allir frá Keflavík nema trommarinn sem er úr Garðinum, eru allir menntaðir tónlistarmenn. Þrír eru útskrifaðir tónsmiðir frá Listaháskólanum og einn úr tónlistarskóla FÍH í trommuleik. Víkurfréttir tók hús á forsprakka sveitarinnar Valdimar Guðmundssyni og forvitnaðist um hljómsveitina Valdimar.?

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Hverjir eru í sveitinni og á hvað spila menn ?
Það er náttúrlega ég, Valdimar Guðmundsson og ég syng og spila á básúnu, svo eru það Ásgeir Aðalsteinsson, gítarleikari, Guðlaugur Már Guðmundsson, bassaleikari, Kristinn Evertsson, hljómborðsleikari og Þorvaldur Halldórsson, trommuleikari.?

Hvernig varð Valdimar til?
Ég og Ásgeir Aðalsteinsson byrjuðum sumarið 2008 að dunda okkur við það að semja lög, svo kom hann Guðlaugur Már Guðmundsson inn í þetta hjá okkur um haustið og við unnum saman í lögunum fram á sumar 2009. Þá komu tveir meðlimir inn í hljómsveitina, Þorvaldur Halldórsson og Margeir Hafsteinsson. Svo var það haustið 2009 sem núverandi mynd bandsins varð til þegar Kristinn Evertsson kom inn í bandið í stað Margeirs.?

Hvernig myndirðu skilgreina tónlist sveitarinnar?
Ætli það sé ekki bara brassskotið popp með dökku ívafi og djass áhrifum.

Hverjir eru þínir helstu áhrifavaldar í tónlist?
Það eru bara þessir „usual suspects“, Bítlarnir, Bob Dylan og Radiohead og svo mætti kannski nefna nýrri listamenn líka eins og Arcade Fire, Bright Eyes og Sufjan Stevens.? 

Hvað hlustarðu helst á?
Það er nú yfirleitt indie, elektróník, rapp eða gæðapopp (ekki fm popp).

Hvað finnst þér um tónlistarlífið á Suðurnesjum? 
Það er bara ágætt. Góðar hljómsveitar að koma upp reglulega og það virðist vera ágætis framleiðsla.


Það er ekkert verið að flækja hlutina hvað nafnið varðar, komu önnur nöfn til greina?
Við vorum eitthvað búnir að vera að velta því fyrir okkur hvað hljómsveitin ætti að heita og okkur datt bara einhver fáránleg nöfn í hug, man bara eftir einu og það var Hamstola, sem er frekar asnalegt náttúrlega. Annað sem kom til greina sem ég var reyndar pínu hrifinn af var Kvintett Valdimars Guðmundssonar. Ásgeir kom svo með þá snilldartillögu að kalla hljómsveitina Valdimar og það var samþykkt.? 

Eru þið búnir að spila mikið undanfarið ?
Það er búið að vera svolítið um spilamennsku upp á síðkastið. Við erum búnir að vera að spila á ýmsum stöðum í Reykjavík og Keflavík. Spiluðum nýlega á Grapevine Grassroots á Hemma og Valda í Reykjavík og á Geimsteinstónleikunum.? 

Hvernig kom það til að gefin var út plata?
Það var bara þannig að á okkar fyrstu tónleikum var staddur Björgvin Ívar Baldursson, upptökumaður Geimsteins. Hann vildi endilega fá okkur í stúdíóið að taka upp og við gerðum það. Stuttu seinna buðu þeir í Geimsteini okkur plötusamning eftir að hafa hlustað á upptökurnar og þá var bara farið í það að vinna í plötu.? 

Einhver íslensk bönd sem að þér líst vel á?
Af Suðurnesjum hef ég alltaf verið mikill aðdáandi hljómsveitarinnar Ælu og svo eru Hjálmar náttúrulega alltaf góðir. Svo er ég líka mjög hrifinn af Moses Hightower, Nóru og Forgotten Lores.


Finnið þið fyrir jákvæðum viðbrögðum gagnvart plötunni?

Já. Maður hefur nú bara heyrt jákvæð viðbrögð frá fólki. Fólk að senda manni kveðjur á Facebook og svona.? 

Hverjir erun að semja lög og texta á plötunni ?
Það eru ég og Ásgeir sem semjum mest megnis af þessum lögum og textum. Þorvaldur og Kristinn eru með einn texta hvor.?

Hvenær byrjaðirðu að semja þína eigin tónlist?
Ég hef verið svona 18-19 ára gamall þegar ég byrjaði að semja tónlist reglulega, fyrst með hljómsveitinni Abú Dabí og síðan með hljómsveitinni Streng. Ásgeir og Guðlaugur voru báðir með mér í þeim hljómsveitum.?

Munuð þið fylgja plötunni eftir með tónleikum?
Já, við héldum útgáfutónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík þann 27. nóvember sl.  Svo munum við reyna að halda hina ýmsu tónleika hér og þar í Reykjavík og Keflavík og vonandi víðar í framhaldinu.?

Hvernig er nánasta framtíð hjá Valdimar?
Það eru bara tónleikahöld og lagasmíðar og á endanum undirbúningur fyrir næstu plötu.

Eruð þið með jólaplötuna í ár?
Jújú.