Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Mannlíf

Bráðum verður enginn Úlfur við girðinguna
Föstudagur 12. janúar 2018 kl. 08:00

Bráðum verður enginn Úlfur við girðinguna

Sýningu Úlfs Karlssonar, Við girðinguna, lýkur á sunnudag í Listasafni Reykjanesbæjar. Hér er á ferðinni einkasýning Úlfs sem er fæddur árið 1988 og er með eftirtektarverðustu listmálurum sinnar kynslóðar. Verk hans eru litríkar og átakamiklar hugleiðingar um mannlífið í abstrakt-expressjónískum anda. Úlfur hefur sýnt verk sín víða, bæði á Íslandi og erlendis og m.a. í Hilger, hinu þekkta gallerí í Austurríki.
 
Heiti sýningarinnar, Við girðinguna, vísar til eiginlegrar staðsetningar hennar, nálægt gömlu flugvallargirðingunni þar sem fyrrum mættust íslensk og bandarísk menning: Íslendingasögur og teiknimyndasögur, rímnastemmur og rokktónlist, sviðakjammar og Hersheys súkkulaði. En sýningin er líka um girðingar í óeiginlegri merkingu, mörkin milli hins smáa og hins stóra, eyjaskeggja og meginlandsbúa, hins heimatilbúna og aðfengna, hins þekkta og óþekkta. Sýning Úlfs staðfestir með sínum hætti, og af sérstökum ástríðukrafti, að girðingin er ekki lengur held. Fiðrildi austur í Asíu blakar vængjum og kemur af stað hvirfilbyl hinum megin á hnettinum. Ofbeldi og óáran utan landsteina eru á augabragði orðin hluti af heimsmynd okkar, þökk sé snjallsímanum.
 
Verk Úlfs eru litríkur vettvangur óútkljáðra átaka, skyndilegra hugljómana og ókláraðra frásagna. Mörkin milli veruleika og óraunveruleika eru yfirleitt óljós og á endanum skilur listamaðurinn eftir heilmikið fyrir okkur að ígrunda, löngu eftir að myndir hans eru horfnar okkur sjónum.
 
Listasafn Reykjanesbæjar er í Duus Safnahúsum. Þar er opið alla daga frá kl. 12 til 17. Verið velkomin.
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024