Bráðskemmtileg leiksýning unglinga í Heiðarskóla
Í Heiðarskóla hefur skapast sú skemmtilega hefð að áhugasamir unglingar setji á svið leikrit sem frumsýnt er á árshátíð unglingastigs. Á því varð engin undantekning í ár en þann 20. mars var leikritið Í sambandi frumsýnt og hlaut það frábærar viðtökur viðstaddra.
Leikritið kallast á frummálinu Connected og er eftir Don Zolidis en það var þýtt og staðfært auk þess sem dansi og söng var komið fyrir víðs vegar í handritinu. Það fjallar um þau óskráðu lög og reglur sem gilda þegar hefja á leitina að kærasta eða kærustu. Unglingsstrákur og stelpa eru leidd í allan sannleikann um það hvað EKKI eigi að gera þegar glímt er við verkefni af því tagi. Ráðgjafar kenna þeim t.d. að blanda ekki foreldrum í slík verkefni og þau upplýst um ,,vinahættuna“ ógurlegu. Tilfinninganæmi drengja og hreinskilni stúlkna eru auk þess ekki talin af hinu góða. Ráðleggingar þessar duga þó skammt enda fylgir það ekki sögunni hvað EIGI að gera í þessum málum.
Það er kraftmikill hópur nemenda úr 8.-10. bekk sem fara á kostum í leik, söng og dansi en leikstjórn er í höndum Bryndísar Jónu Magnúsdóttur, Guðnýjar Kristjánsdóttur og Maríu Óladóttur.
Almennar sýningar á þessu bráðskemmtilega leikriti verða kl. 20.00 mánudaginn 8. apríl og þriðjudaginn 9. apríl á sal Heiðarskóla. Miðaverð er 1000 kr. og stendur sýningin yfir í tæpa klukkustund.