Börnin á Holti unnu vatnsbrunn í keppni
– um bestu myndina hjá Embætti landlæknis
Börnin á leikskólanum Holti í Innri Njarðvík sendu fallega mynd í myndasamkeppni hjá Embætti landlæknis. Keppnin tengdist vatni og var undir kjörorðunum „Vatn er besti svaladrykkurinn“.
Í morgun var svo tilkynnt að leikskólabörnin hafi unnið til fyrstu verðlauna. Að launum fá þau myndarlegan vatnsbrunn eða font sem settur verður upp á leikskólanum.
Það var Jóhanna Laufey Ólafsdóttir hjá Embætti landlæknis sem kom og færði börnunum verlaunin og gaf þeim einnig endurskinsmerki sem jafnframt minnir börnin á að hugsa vel um tennur. Kristín Helgadóttir, leikskólastjóri, tók við verðlaununum. Börnin þökkuðu svo fyrir sig með því að syngja tvö lög, annað íslenskt og hitt á ensku.
Meðfylgjandi myndir voru teknar við þetta tækifæri.