Borðaði á sig gat
Gleði bæjarbúa í Reykjanesbæ með Ljósanótt, sem fram fór um síðustu helgi, virðist mikil og einlæg. Fjölmargir hafa lýst ánægju sinni á Fésbókinni en eins hafa tölvuskeyti borist til Víkurfrétta með óskum um að þakklæti fyrir hátíðina verði komið á framfæri.
Að neðan eru þakkir frá Huldu Sveinsdóttur í bundnu máli.
Súpu fékk frá Skólamat,
borðaði alveg á mig gat.
Gómsætt kjöt og fleira,
mig langar í meira.
Þakkir sendast undireins,
knús og kossar frá Huldu Sveins.