Bóndadagstónleikar í Hlöðunni
Í kvöld, föstudagskvöld, mun Markús Bjarnason koma fram á sérstökum Bóndadagstónleikum Hlöðunnar. Tónleikarnir hefjast kl. 20:00 í Hlöðunni við bæinn Minni-Voga, Egilsgötu 8, í Vogum á Vatnsleysuströnd. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Viðburðurinn er sá fyrsti í röð viðburða sem Hlaðan býður upp á í ár en dagskráin er komin út og má m.a. nálgast hana á vefsíðu Hlöðunnar www.hladan.org. Menningarverkefnið Hlaðan er styrkt af Menningarráði Suðurnesja.