Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Bón- og þrifpakkinn breyttist  í demantshring
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
föstudaginn 16. desember 2022 kl. 08:00

Bón- og þrifpakkinn breyttist í demantshring

Emma Geirsdóttir er aðfluttur Grindvíkingur en ólst upp á Akureyri. Hún hefur verið virk í félagsstarfi Grindvíkinga síðan hún fluttist í bæinn árið 1999, t.d. í Kvenfélaginu og er í Þórkötlu sem er kvennadeild björgunarsveitarinnar Þorbjörns. Hún hefur alltaf verið mikið jólabarn og eftirminnilegasta jólagjöfin er klárlega gjöf sem leit út fyrir að verða glötuð en breyttist í yndislegustu gjöfina.

Hvernig var árið 2022 hjá þér og þinni fjölskyldu og hvað stendur upp úr?

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Árið 2022 er búið að vera viðburðaríkt hjá mér og mínum manni, við byrjuðum árið á að fá covid og vorum að taka íbúðina í gegn hjá okkur, brjóta, bramla og mála svo það var bara verkjatafla og halda áfram. Við eigum þrjú börn og komu þau öll með barn á árinu, í febrúar, mars og maí svo árið er búið að vera yndislegt hjá mér og minni fjölskyldu.

Ert þú mikið jólabarn?

Já ég er mikið jólabarn og nýt þess að skreyta allt hátt og lágt hjá mér.

Hvenær er jólatréð yfirleitt sett upp á þínu heimili?

Venjulega fer tréð upp í fyrstu viku desember hjá mér en núna var það sett upp 6. nóvember og all skrautið líka. Við vorum með jólaboð um miðjan nóvember svo allir kæmust.

Hver eru fyrstu jólin sem þú manst eftir - áttu einhverjar skemmtilegar jólaminningar?

Ég var þriggja, að verða fjögurra jólin 1975, þá uppgötvaðist á Þorláksmessu að allt laufabrauðið væri ónýtt svo við stórfjölskyldan fórum í að gera nýtt laufabrauð, um 500 til 600 kökur.

En skemmtilegar jólahefðir?

Þegar við förum í laufabrauð þá finnst mér jólin vera að koma.

Hvenær klárar þú að kaupa jólagjafirnar?

Oftast er ég búinn í byrjun desember en núna fór ég til Ameríku og kláraði allt þar í enda nóvember.

Hvað finnst þér vera ómissandi á jólunum?

Góð stund með fjölskyldunni og horfa á fallega jólamynd.

Hver er eftirminnilegasta jólagjöfin sem þú hefur fengið?

Eftirminnilegasta jólagjöfin var þegar bóndinn ætlaði að vera voðalega fyndinn og gaf mér bón- og þrifpakka fyrir bílinn sem var í glærri tösku. Ég var ekki voðalega ánægð með hann og neitaði að skoða pakkann betur og á jóladagskvöld opnaði ég hann svo hann myndi hætta að stæra sig af fína bónsettinu, þá leyndist þar demantshringur sem ég vissi ekki af.

Er eitthvað á óskalistanum fyrir jólin í ár?

Nei einginn óskalisti ég er ánægð með allt nema bílabón

Hvað verður í jólamatinn hjá þér á aðfangadagskvöld? Eru hefðir í mat?

Ég verð með Hamborgarhrygg sem er alltaf hjá mér ég ólst upp við það og held í þá hefð.

Hvað ætlar þú að gera í kringum jólahátíðina í ár?

Ég ætla að vera heima að hafa það rólegt um jólinn og hitta fjölskylduna og barnabörninn