Boltafjör á Íþróttavöllum
Þessir voru ekki háir í loftinu en það kom ekki í veg fyrir að þeir gætu spilað körfubolta í íþróttahúsinu á Vallarheiði. Þar hefur verið opið hús í dag og fólki frjálst að leika sér í íþróttasalnum í körfubolta, handbolta, fótbolta nú eða spila folf, sem er sambland af frisbí og golfi.
Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi Bárðarson