Bókasafn Reykjanesbæjar býður í bókmenntagöngu
Bókasafn Reykjanesbæjar býður bæjarbúum í bókmenntagöngu í tilefni af heilsu- og forvarnarviku, laugardaginn 6. október n.k. kl. 11:00 - 12:30.
Lagt verður af stað frá Bókasafninu og stoppað á völdum stöðum sem tengjast bókmenntaverkum
og lesið brot úr þeim á hverjum stað. Göngunni lýkur einnig á Bókasafninu þar sem boðið verður upp á léttar veitingar.
Leiðarlýsingu er hægt að sjá á Bókasafninu sjálfu og upplýsingar um þau verk sem lesið verður úr.