Bókakonfekt í bíósal Duus húsa
Fjölmenni var á Bókakonfekti Bókasafns Reykjaensbæjar í bíósal Duus húsa nú síðdegis.
Rithöfundarnir Úlfar Þormóðsson, Bryndís Schram, Stefán Máni og Guðrún Eva Mínervudóttir lásu úr nýútkomnum bókum sínum. Stúlknatríóið Konfekt lék á milli atriða nokkur jólalög.
Eins og alltaf á bókakonfekti var aðgangur ókeypis og boðið upp á kaffi og konfekt. Þegar fréttamaður VF leit við var fyrrverandi Suðurnesjamaðurinn Úlfar Þormóðsson í pontu að kynna bók sína um prestinn og skáldið Hallgrím Pétursson.
Bryndís Schram og Jón Baldvin Hannibalsson á Bókakonfekti í Reykjanesbæ.