Blýantsteikningar til styrktar Unicef
- Arís Eva lætur gott af sér leiða
Arís Eva Vilhelmsdóttir, 26 ára úr Reykjanesbæ, fæst við ýmis konar listsköpun og hefur teiknað frá því hún man eftir sér. Síðasta sumar eignaðist hún sitt fyrsta barn og á síðustu vikum meðgöngunnar velti hún því mikið fyrir sér hversu erfitt það er fyrir barnshafandi konur að vera á flótta undan stríði. Hún ákvað því að teikna myndir af börnum, selja og láta ágóðann renna til Unicef, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. „Ég var eiginlega með börn á heilanum á þessum tíma og langaði til að gera fallega seríu með teikningum af börnum. Mig langaði að gefa af mér til Unicef og reyna að hjálpa,“ segir hún. Markmiðið er að safna fyrir vatnsdælu sem kostar 52.540 krónur og nýta svo afganginn til að kaupa teppi, mat og bólusetningar.
Arís teiknaði fjórar myndir og selur frumrit þeirra á 29.000 krónur og rennur sá ágóði óskiptur til Unicef. Eftirprentanir myndanna kosta 6.900 krónur. Arís verður á hárgreiðslustofunni Háráttu við Hafnargötu í Reykjanesbæ á Þorláksmessu með myndirnar sínar. Veggmyndirnar er einnig hægt að nálgast á Facebook-síðunni Studio Aris og á vinnustofu Sossu við Mánagötu í Reykjanesbæ. Myndirnar teiknaði Arís með blýpenna með þykku blýi á vatnslitapappír og segir hún það gefa mjög grófa og skemmtilega áferð.
Arís er að mestu sjálflærð í teikningu en lærði líka myndlist í Fjölbrautaskóla Suðurnesja og hefur lokið fornámi við Myndlistarskóla Reykjavíkur. Þá lærði hún þrívíddar tölvuleikjahönnun í eitt ár í Hollandi og var myndlist ein af undirstöðum þess náms og því skipti sköpum fyrir Arís að vera með góðan grunn í teikningu. Hún hefur einnig lokið einni önn í handritagerð og leikstjórn frá Kvikmyndaskóla Íslands.
Arís Eva eignaðist dótturina Flóru Lind Fannarsdóttur síðasta sumar. Á meðgöngunni hugsaði hún mikið til barnshafandi kvenna á flótta undan stríði og ákvað að selja blýantsteikningar og láta ágóðann renna til Unicef.
Arís teiknaði myndirnar með blýpenna með þykku blýi á vatnslitapappír sem gefur skemmtilega og grófa áferð.
Hér má sjá stiklu úr nýjasta þætti Suðurnesjamagasíns Sjónvarps Víkurfrétta