HSS
HSS

Mannlíf

  • Blossi færði nafngjöfum sínum verðlaun
    5.H.G. ásamt Ásgerði skólastjóra og Líneyju Rut Halldórsdóttur, framkvæmdastjóra ÍSÍ.
  • Blossi færði nafngjöfum sínum verðlaun
Mánudagur 16. mars 2015 kl. 13:21

Blossi færði nafngjöfum sínum verðlaun

Mætti í Njarðvíkurskóla ásamt fulltrúum ÍSÍ og Smáþjóðaleikanna.

„Það var mjög óvænt og ánægjulegt að vera stödd á úrslitaleik í bikarkeppni KKÍ í Laugardalnum þegar nafn Njarðvíkurskóla var lesið upp. Ég var sú eina sem fagnaði í hálfleik,“ sagði Ásgerður Þorgeirsdóttir, skólastjóri Njarðvíkurskóla, en nemendur 5.H.G. í skólanum komu með sigurnafnið Blossa, sem verður lukkudýr Smáþjóðaleikanna í ár.

Blossi mætti til Njarðvíkurskóla í morgun, ásamt fulltrúum ÍSÍ og Smáþjóðaleikanna og færði skólanum gjafakort fyrir tölvubúnaði að verðmæti 100.000 kr frá Advania. Einnig fengu nemendur vinningsbekkjarins lítinn Blossa til eignar. 

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Þegar 100 dagar voru þar til Smáþjóðaleikarnir yrðu settir var lukkudýri leikanna gefið nafnið. ÍSÍ hefði efnt til nafnasamkeppni í janúar og þátttökurétt áttu allir 4.—7. bekkir í grunnskólum landsins. Hver bekkur mátti skila einu nafni og keppninni bárust 140 nöfn.

Hugmyndaflug nemenda var mikið og rökstuðningurinn sem fylgdi nöfnunum mjög skemmtilegur. Fimm manna nefnd var skipuð til þess að vinna úr innsendum tillögum og velja nafn sem hentar lukkudýrinu. Tveir bekkir sendu inn tillögu með sigurnafninu, 6. bekkur í Vesturbæjarskóla og 5.H.G. Í Njarðvíkurskóla og því varð að draga út vinningsskólann. 

Víkurfréttir litu við og tóku meðfylgjandi myndir. 

Blossi ásamt fulltrúum Njarðvíkurskóla, ÍSÍ og Smáþjóðaleikanna. 

Líney Rut afhendir Ásgerði gjafabréfið.

Dúkku-Blossi. 

Allir nemendur í 4.-7. bekk fengu mynd af sér með Blossa. 

 

VF/Olga Björt