Blómamarkaður við Ytri Njarðvíkurkirkju
Blómamarkaður Lionsklúbbsins Æsu verður við Ytri-Njarðvíkurkirkju dagana 30. maí – 1. júní, frá kl. 16 – 19. Ágóði af blómasölunni rennur óskiptur til líknarmála. Heitt verður á könnunni alla dagana. Á blómamarkaðnum mun Lionsklúbburinn Æsa færa Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og kirkjugarði Njarðvíkursókna gjafir.
Þetta er annað árið sem Blómamarkaðurinn er í höndum Lionsklúbbsins Æsu, en hann var, sem kunnugt er, áður á vegum Systrafélags Ytri Njarðvíkurkirkju. Lionsklúbburinn Æsa er kvennaklúbbur, stofnaður árið 1997, en félagskonur höfðu þá starfað undir merkjum Lionessuklúbbs Njarðvíkur frá árinu 1987. Klúbburinn fagnar því í raun 30 ára afmæli sínu á þessu ári. Klúbburinn hefur á þessum árum styrkt líknar- og menningarmál, einkum hér í heimabyggð en einnig stutt við verkefni Lions á alþjóðavísu.
Lions er stærsta alþjóðlega þjónustuhreyfing heims, stofnuð árið 1917, fyrir réttum hundrað árum. Félagafjöldi er um 1.4 milljónir, klúbbarnir um 46.000 talsins í yfir 200 löndum.
Lionsfélagarnir í Æsu eru í afmælisskapi, verða með falleg og góð blóm á markaðnum og hlakka til að taka á móti Suðurnesjamönnum í blómahugleiðingum.