Blómamarkaður í Njarðvík
Fimmtudaginn 29. maí til sunnudagsins 1. júní n.k. heldur Systrafélag Ytri-Njarðvíkurkirkju sinn árlega blómamarkað. Þetta er 23. árið sem blómamarkaðurinn er haldinn og er hann orðinn fastur liður í hugum margra bæjarbúa.Mörgum finnst sumarið fyrst komið þegar Systrafélagskonur hefja sölu sína. Þetta er aðal fjáröflunarleið félagsins og vonumst við eftir að sem flestir komi og geri góð kaup. Eins og undanfarin ár verður m.a. boðið upp á sumarblóm, fjölær blóm, rósir og runna. Markaðurinn verður við kirkjuna og er opinn alla dagana frá 13 – 17. Alltaf heitt kaffi á könnunni.
Með fyrirfram þökk fyrir góðan stuðning, Systrafélag Ytri-Njarðvíkurkirkju.
Með fyrirfram þökk fyrir góðan stuðning, Systrafélag Ytri-Njarðvíkurkirkju.